[Gerlanet] Greiðsla félagsgjalda

Sigurdur Einar Vilhelmsson gerlanet@rhi.hi.is
Thu, 05 Dec 2002 15:44:09 +0000


Kæru félagar,

Síðasta vetur sendum við út póst þar sem við buðum þeim, sem það vildu, að 
greiða félagsgjöldin í gegnum netbanka.  Undirtektir voru góðar og tæplega 
helmingur félagsmanna valdi þann kost að greiða rafrænt.  Efndir hafa 
hinsvegar ekki verið eins góðar því aðeins hafa 14 manns greitt félagsgjöld 
fyrir árið 2001 á netinu.  Þeir sem ekki hafa gert skil um netbanka fyrir 
árið 2001 eru vinsamlegast beðnir að gera það hið fyrsta.

Þá eru allir þeir sem greiða félagsgjöld rafrænt beðnir um að greiða 
félagsgjöld ársins 2002 við fyrsta hentugleik.

Samantekt:
Reikningsnúmer félagsins er: 0313-26-002409
Kennitala Örverufræðifélagsins er 550290-1039
Árgjald er 1.100 kr
Mikilvægt er að fram komi í tilvísun netgreiðslu kennitala eða nafn 
félagsmanns.

Þeir sem ekki kusu að greiða rafrænt fá senda greiðsluseðla.

Að lokum viljum við biðjast velvirðingar á þeim drætti sem hefur orðið á 
innheimtunni.

Bestu kveðjur,
fyrir hönd stjórnar Örverufræðifélagsins,
Sigurður E. Vilhelmsson
gjaldkeri