Kynning á fræðslustarfi
Þjóðminjasafns Íslands

Fimmtudaginn 23. september kl. 16:30-18:00
verður  fjölbreytt fræðslustarf Þjóðminjasafns Íslands kynnt,
ásamt sýningum, fyrirlestrum og öðru því sem verður á dagskrá safnsins
í vetur. Kynningin hefst í fyrirlestrasal safnsins og er öllum opin.

Í Þjóðminjasafni Íslands er boðið upp á
skipulagða fræðslu fyrir nemendur á öllum skólastigum, sem og ýmsa aðra
sérhópa. Fræðslan er sniðin að þörfum hvers hóps, auk þess að vera unnin
út frá aðalnámsskrá og er leitast við að gera heimsóknina bæði skemmtilega
og fróðlega í senn.

Fjölmargir möguleikar eru í boði fyrir alla
þá sem koma í safnið á eigin vegum. Sem dæmi má nefna hljóðleiðsögn á mörgum
tungumálum sem veitir dýpri sýn á viðfangsefni sýninga, ratleiki fyrir
fjölskyldur, sem má nálgast í móttöku, fyrir utan fjölda sérsýninga,  fyrirlestra
og viðburðadaga, sem munu setja mark sitt á dagskrá safnsins í vetur.

Nýjung á safninu er ”Ó borg, mín borg”,
en það er herbergi búið húsgögnum frá árunum 1955-65. Þar geta safngestir
sest niður, skoðað myndir og handfjatlað muni frá þessum árum. Einnig er
tekið á móti hópum aldraðra í s.k. minningavinnu.

Nánari upplýsingar veita safnkennarar í
síma 5302200 eða kennsla@thjodminjasafn.is

Með bestu kveðju,

Helga Vollertsen

Kynningarstjóri

Þjóðminjasafni Íslands

v/Suðurgötu

101 Reykjavík

s. 5302222/gsm 8242039