<div align=center><font size=3 face="Book Antiqua"><b>Sunnudaginn 20. júní
veitir Einar Falur Ingólfsson leiðsögn um sýninguna &nbsp;<i>Sögustaðir
– í fótspor W.G. Collingwoods.</i></b></font>
<p><font size=3 face="Book Antiqua"><b>Leiðsögnin hefst klukkan 14:00 og
er öllum opin.</b></font>
<p><img src=cid:_1_0A59D9580A59D558005127CB00257744></div>
<br><font size=2 face="Book Antiqua">Á sýningunni <i>Sögustaðir – í fótspor
W.G. Collingwoods </i>má sjá ljósmyndaverk eftir Einar Fal Ingólfsson,
sem unnin eru með hliðsjón af vatnslitamyndum, teikningum og ljósmyndum
sem breski myndlistarmaðurinn og fornfræðingurinn William Gershom Collingwood
málaði og tók af stöðum sem koma fyrir í Íslendingasögunum á tíu vikna
ferðalagi um Ísland sumarið 1897. Sýningin er hluti af Listahátíð í Reykjavík
2010.</font>
<p><font size=2 face="Book Antiqua">W.G. Collingwood kom til landsins til
að mála myndir af stöðum sem koma fyrir í Íslendingasögunum og um leið
skapaði hann merkar heimildir um íslenskan samtíma sinn. Í ljósmyndum Einars
Fals verður til samtal þriggja tíma; samtíma áhorfandans í dag, samtíma
Collingwoods árið 1897 og sögualdarinnar, sem Bretinn hyllti í myndverkum
sínum.</font>
<p><font size=2 face="Book Antiqua">Á sýningunni í Bogasal Þjóðminjasafns
Íslands má sjá úrval ljósmynda Einars Fals og að auki hluta þeirra rúmlega
300 verka sem Collingwood málaði hér á landi, en ríflega helmingur myndanna
frá ferð hans eru varðveittar í Þjóðminjasafninu. </font>
<p><font size=2 face="Book Antiqua">Sýningin er hluti af Listahátíð í Reykjavík
2010.</font>