<div align=center><font size=5 face="Book Antiqua"><b>17. júní í Þjóðminjasafni
Íslands</b></font></div>
<p><font size=2 face="Book Antiqua"><b>Í Þjóðminjasafni Íslands verður
þjóðhátíðardegi Íslendinga fagnað með ókeypis aðgangi og leiðsögn um grunnsýningu
safnsins <i>Þjóð verður til - Menning og samfélag í 1200 ár.</i> Leiðsögnin
er öllum opin og hefst klukkan 14.</b></font>
<div align=center>
<p><img src=cid:_1_0A6989D80A698444003B23FD00257743></div>
<br><font size=2 face="Book Antiqua">Grunnsýningu Þjóðminjasafnsins er
ætlað að hvetja gesti til að spyrja grundvallarspurninga um þjóðina sem
byggt hefur Ísland til þessa dags. Hún felur í sér túlkun og endurmat samtímans
á Íslandssögunni og um leið á því hver við erum.</font>
<p><font size=2 face="Book Antiqua">Á sýningunni er leitast við að draga
upp skýra og heillega mynd af menningarsögu Íslendinga. Gripir safnsins
eru settir í sögulegt samhengi þar sem tekið er mið af nýjustu rannsóknum.
</font>
<p><font size=2 face="Book Antiqua">Helstu nýjungum í sýningargerð er beitt
til að miðla gestum fjölbreyttum menningararfi þjóðarinnar. Margmiðlunarskjáir,
hljóðleiðsögn og myndamöppur nýtast vel til að dýpka sýnina, brúa bilið
þar sem tíminn hefur ekki skilið eftir áþreifanlegar minjar og skapa þannig
frekari samfellu í sýningunni.</font>