„Kryddar sig sjálft“

Þriðjudag 30. mars frá kl. 16-17, stofu 201 í Árnagarði.

Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.

Jón Þór Pétursson doktorsnemi í þjóðfræði flytur fyrirlestur á vegum Félags þjóðfræðinga á Íslandi og Háskóla Íslands um matarmenningu samtímans sem byggir á meistararitgerð hans.

Merking býr ekki í matnum óháð þeim sem leggur sér hann til munns og um leið verður það að matast að menningarlegri iðju. Þetta má greina í þeirri viðleitni við að skapa persónuleg tengsl í matvælaframleiðslu samtímans (myndin af beljunni utan á ostinum), í samspili hins hnattvædda og hins staðbundna með tilliti til matar og hvernig viðmælendur fóta sig innan mótsagnakenndra hugmynda samtímans, hugmynda um hollustu, náttúru, hreinlæti og hefðir. Rannsóknarspurningin sem Jón reyndi að svara í ritgerðinni var: Hvernig skapa einstaklingar sína matarmenningu í gegnum sýn sína á „náttúru“, „hefð“ og „stað“?

Í hversdagslegri iðkun menningar verður til samhengi sem tekur mið af félagslegum, sögulegum, efnahagslegum og pólitískum hugmyndum einstaklinga og hópa. Matur er þar ekki undanskilinn og í matarvenjum birtast þannig sjónarmið sem vísa handan hins líffræðilega kaloríugildis.

Félag þjóðfræðinga á Íslandi
www.akademia.is/thjodfraedingar
thjodfraedingar@gmail.com