Leiðsögn um sýninguna

Ævispor – útsaumsverk Guðrúnar
Guðmundsdóttur

Þriðjudaginn 9. mars n.k. mun Guðrún
Guðmundsdóttir veita leiðsögn um sýninguna Ævispor í Bogasal Þjóðminjasafns
Íslands. Leiðsögnin er hluti af hádegisfyrirlestraröð safnsins, en í vor
verður fjallað um íslenska hannyrðahefð í fortíð og nútíð. Leiðsögnin hefst
kl. 12:05. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Á sýningunni Ævispor má sjá
útsaumsverk Guðrúnar sem hún hefur unnið með gömul handrit og forn útsaumuð
klæði að fyrirmynd. Verk Guðrúnar eru tilkomumikil og hafa sterka skírskotun
í listrænan arf og þjóðlegar hefðir Íslendinga. Þau eru dæmi um hvernig
íslenskar konur í nútímanum nýta sér menningararfinn og sýna vel hvernig
hefð og nýsköpun fara saman. Sýningin er liður í þeirri stefnu safnsins
að endurspegla samtímann og tengsl hans við gamlar hefðir.

Með bestu kveðju,

Helga Vollertsen

Kynningarstjóri

Þjóðminjasafni Íslands

v/Suðurgötu

101 Reykjavík

s. 5302222/gsm 8242039