Áttu forngrip í fórum
þínum?

Sunnudaginn 7. mars n.k. verður
almenningi í sjötta sinn boðið að koma með gamla gripi til greiningar hjá
sérfræðingum Þjóðminjasafns Íslands. Þessir greiningardagar hafa verið
mjög vel sóttir og margt skemmtilegt komið þar fram. Dagskráin hefst kl.
14 og lýkur kl. 16 og samkvæmt fenginni reynslu næst að greina um 50 gripi
á þeim tíma. Fólki er því bent á að koma tímanlega og taka númer.

Meðal þess sem fólk hefur komið með
til greiningar eru tóbaksdósir sem munu hafa verið í eigu Brynjólfs Péturssonar
Fjölnismanns, stokkabelti eignað Ragnheiði biskupsdóttur, forn öxi sem
fannst í jörðu í Þjórsárdal og hlutar úr vinsælu bollastelli frá 19. öld.

Í þetta sinn verður einnig forvörður
á staðnum sem gefur góð ráð varðandi meðferð gamalla gripa í heimahúsum.

Tekið skal fram að einungis verður
reynt að greina muni með tilliti til aldurs, efnis, uppruna o.s.frv. en
starfsmenn safna meta ekki verðgildi gamalla gripa. Eigendur taka að sjálfsögðu
gripina með sér aftur að lokinni skoðun.

Með bestu kveðju,

Helga Vollertsen

Kynningarstjóri

Þjóðminjasafni Íslands

v/Suðurgötu

101 Reykjavík

s. 5302222/gsm 8242039