Fréttatilkynning:

Þjóðháttasöfnun um kreppuna, hrunið
og Búsáhaldabyltinguna

Þjóðminjasafn Íslands vinnur nú að
söfnun heimilda um kreppuna, hrunið og Búsáhaldabyltinguna. Á safninu stendur
yfir sýningin Fyrir ári þar sem sjá má muni sem safnast hafa og
komu við sögu í mótmælunum í kjölfar efnahagshrunsins 2008. Af þessu tilefni
hefur verið tekin saman spurningaskrá sem send er út um þessar mundir.
Safnið hefur áhuga á að ná til fólks sem býr yfir upplýsingum um framangreint
efni.

Unnt er að sækja spurningaskrána á heimasíðu
Þjóðminjasafnsins, www.thjodminjasafn.is
og senda svör í tölvupósti á netfangið agust@thjodminjasafn.is.

Öll svör verða varðveitt nafnlaus og
því ópersónugreinanleg. Með spurningaskránni er leitast við að ná til sem
breiðasts hóps í öllum landshlutum, jafnt karla sem kvenna.

Þeir sem fremur kjósa að svara ekki
stafrænt geta fengið spurningaskrána senda í pósti ásamt umslagi sem setja
má ófrímerkt í póst og pappír til að svara á með því að hafa samband við
Þjóðminjasafnið í síma 530 2200 eða að senda tölvupóst á netfangið agust@thjodminjasafn.is.

Þjóðminjasafnið vill hvetja fólk til
að leggja söfnuninni lið og varðveita þannig mikilvæga þekkingu sem annars
er hætt við að færi forgörðum.

Þjóðminjasafn Íslands hefur í um hálfa
öld safnað heimildum um þjóðhætti með spurningaskrám. Spurt hefur verið
um lífshætti, siði og venjur fyrr á tímum en í seinni tíð hefur söfnunin
einnig beinst að samtímanum. Svör heimildarmanna eru varðveitt í skjalasafni
stofnunarinnar og slegin inn í stafrænan gagnagrunn. Aðgangur að grunninum
er þó takmarkaður og háður sérstöku leyfi.

Með bestu kveðju,

Helga Vollertsen

Kynningarstjóri

Þjóðminjasafni Íslands

v/Suðurgötu

101 Reykjavík

s. 5302222/gsm 8242039

helga.vollertsen@thjodminjasafn.is