Ása G. Wright – frá Íslandi til
Trinidad

Laugardaginn 28. nóvember verður sýningin
Ása G. Wright – frá Íslandi til Trinidad opnuð í horninu á 2. hæð
Þjóðminjasafns Íslands. Á sýningunni getur að líta hluta þeirra gripa sem
Ása gaf safninu á 7. áratug síðustu aldar. Margir gripanna hafa ekki verið
sýndir áður. Sýningin er sett upp samhliða útkomu nýrrar ævisögu Ásu en
Inga Dóra Björnsdóttir mannfræðingur hefur ritað bókina Kona þriggja
eyja um ævi Ásu og kom hún út hjá Forlaginu nýlega.

Áslaug Guðmundsdóttir, eða Ása G. Wright,
fæddist að Laugardælum í Ölfusi 12. apríl 1892. Hún lést í Port  of
Spain á eynni Trinidad í Karíbahafinu 6. febrúar 1971. Líf hennar var sannkallað
ævintýri frá því hún var ung læknisdóttir á Íslandi þar til hún á efri
árum rak gistiheimili í náttúruparadís á hitabeltiseyju. Persónuleiki  Ásu
var stór í sniðum, hún lét hendur standa fram úr ermum og er hverjum þeim
eftirminnileg  sem henni kynntust. Hún var af fyrirmönnum komin og
var ákaflega stolt af uppruna sínum og vildi halda minningu ættarinnar
á lofti.

Ása var velgjörðarmaður Þjóðminjasafns
Íslands og gaf safninu hluta búslóðar sinnar ásamt veglegri fjárupphæð.
Árið 1968 var stofnaður minningarsjóður Ásu Guðmundsdóttur Wright.
Sjóðurinn er í vörslu Þjóðminjasafns Íslands og er ætlað að standa straum
af heimsóknum erlendra fræðimanna til landsins, til að flytja fyrirlestra
á vegum safnsins um þætti í norænni menningu. Fyrirlestrar sjóðsins hafa
verið gefnir út í sérstakri ritröð. Nýjasta ritið, sem er númer þrettán
í ritröðinni, ber heitið Islands fine sølv  en ritin eru fáanleg
í safnbúð Þjóðminjasafnsins.

Með bestu kveðju,

Helga Vollertsen

Kynningarstjóri

Þjóðminjasafni Íslands

v/Suðurgötu

101 Reykjavík

s. 5302222/gsm 8242039