Staður: Hús Sögufélagsins

Stund: 20:00, miðvikudaginn 25. nóvember

Vilborg Davíðsdóttir rithöfundur er flestum kunn. Hún hefur skrifað fjölda bóka sem eru ríkar í þjóðfræðilegu innihaldi enda er Vilborg sjálf með BA gráðu í faginu og stundar nú í því meistaranám. Á miðvikudaginn 25. nóvember klukkan 20:00 í húsi Sögufélagsins við Fischersund mun Vilborg halda tölu á vegum Félags þjóðfræðinga. Umfjöllunarefni hennar verður nýjasta bók hennar Auður. Hún mun ræða um það hvernig hún flettar saman þjóðfræðilegum rannsóknum og skáldskap í skáldævisögu Auðar djúpúðgu, lesa úr bókinni og sýna myndir og kort tengd sögusviðinu á Bretlandseyjum og heimildavinnunni. Á staðnum verður einnig hægt að kaupa bókina með góðum afslætti.