Auður fyrr og nú

Á dögunum kom út sögulega skáldsaga
eftir Vilborgu Davíðsdóttur þar sem umfjöllunarefnið er landneminn Auður
djúpúðga. Af því tilefni efna Forlagið og Þjóðminjasafn Íslands til útgáfugleði
nk. laugardag, 21. nóvember, þar sem mikið verður um dýrðir. Dagskráin
er öllum opin, hún fer fram í Þjóðminjasafninu og hefst kl. 13.00.

Vilborg er þekkt fyrir vandaðar sögulegar
skáldsögur og var m.a. tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir
þá síðustu, Hrafninn, sem kom út árið 2007.  Hún mun kynna
bók sína og segja frá tilurð hennar en þar búa að baki bæði fjölþættar
rannsóknir og ýmis konar grúsk, bæði hér heima og erlendis. Vilborg gjörþekkir
mannlíf sögutímans og staðhætti á Suðureyjum þar sem Ketill flatnefur,
faðir Auðar, var höfðingi og fylgir viðburðaríkri sögu hennar allt frá
fyrstu tíð og þar til hún siglir til Íslands.  Þroskasaga Auðar er
sögð um leið og dregin er upp einstök mynd af þeim róstusömu tímum þegar
norrænir menn lögðu undir sig eyjarnar við Skotland og herjuðu í Vesturhafi
og háðu jafnvel blóðuga bardaga innbyrðis.

Auðar landsins láta svo sitt ekki
eftir liggja. Listakonan Gaga Skorrdal sem þekkt er fyrir hönnun sína,
sem bæði hefur sterka vísun í íslenska sögu og íslenskan nútíma, hefur
fengið nokkrar þeirra til liðs við sig og munu þær sýna fatnað sem Auðum
sæmir. Engin þeirra hefur slík fyrirsætustörf að aðalstarfi heldur koma
þær saman af þessu óvenjulega tilefni og fagna með því nöfnu sinni.

Nánari upplýsingar veitir Vilborg
Davíðsdóttir (695-0965).