Nýjar myndir á sýningunni Óþekkt
augnablik.

Þann 12. september 2009 var ljósmyndasýningin
Óþekkt augnablik opnuð í Þjóðminjasafni Íslands. Sýningin er greiningarsýning
á ljósmyndum frá tímabilinu 1900-1960 úr Ljósmyndasafni Íslands í Þjóðminjasafni
og hefur verið leitað aðstoðar safngesta við að greina myndefnið.

Miklar upplýsingar hafa borist um myndirnar
á sýningunni og því hefur verið ákveðið að skipta myndunum út fyrir
nýjar. Það er von Þjóðminjasafnsins að almenningur geti einnig aðstoðað
við greiningu nýju myndanna. Allar myndir sýningarinnar eru aðgengilegar
á heimasíðu safnsins, en þar má einnig sjá þær upplýsingar sem hafa borist
hingað til.

Í hundrað ár hefur Þjóðminjasafn Íslands
safnað ljósmyndum. Söfnunin hefur haldist í hendur við þróun ljósmyndunar.
Ljósmyndir eru samofnar lífi eigandans, einskonar minningabanki sem hann
leitar í. Fólk lætur ljósmyndir ekki af hendi fyrr en þær missa gildi sitt.
Þannig voru það fyrst brúntóna harðspjaldamyndir af uppstilltu fólki í
sínu fínasta pússi sem bárust safninu til varðveislu. Seinna bættust í
sarpinn myndir af bæjum til sveita, götum þorpa, af fólki að störfum úti
og inni og íslensku landslagi með sínum fossum og fjöllum. Eftir að atvinnumenn
hættu að sitja einir að myndatökum og fólk fór sjálft að skapa sér eigin
myndasöfn fóru litlar skyndimyndir að berast. Vinafólkið á ferðalagi, nesti
snætt í laut, daglegt líf fjölskyldunnar heima og heiman. Það líður langt
frá myndatökunni og þar til mynd verður að safngrip og því er enn lítið
af litmyndum í safninu og enn lengra í land þar til símamyndir samtímans
munu berast ef að þær hverfa ekki við endurnýjun farsímans.

Stærsti hluti myndasafnanna eru samt ekki
pappírsmyndir heldur glerplötur og filmur frá atvinnu- og áhugamönnum.
Á þessari sýningu er brugðið upp myndum úr sex slíkum filmusöfnum. Þeim
er ætlað að sýna þverskurð af viðfangsefnum ljósmyndaranna og sýna þróun
íslensks samfélags á þeirri rúmu hálfu öld sem þær spanna. Jafnframt eru
þær gestaþraut þar sem leitað er í smiðju safngesta um þekkingu á því sem
myndirnar sýna. Hvar eru myndirnar teknar? Hvaða fólk er á þeim?

Í tengslum við sýninguna hefur verið opnað
sérstakt vefsvæði á heimasíðu Þjóðminjasafnsins, www.thjodminjasafn.is.
Þar er hægt að skoða myndirnar og geta gestir skráð athugasemdir við þær
ef þeir þekkja til fólks eða staða á myndunum. Upplýsingarnar eru síðan
yfirfarnar og skráðar í gagnagrunn safnsins. Upplýsingar sem safnast með
þessum hætti eru safninu einkar mikilvægar því þær setja nafnlausar myndir
í nýtt samhengi og segja sögur sem annars hefðu fallið í gleymskunnar dá.

Með bestu kveðju,

Helga Vollertsen

Kynningarstjóri

Þjóðminjasafni Íslands

v/Suðurgötu

101 Reykjavík

s. 5302222/gsm 8242039