Hádegisfyrirlestur um varðveislu gripa
og listaverka í heimahúsum

Þriðjudaginn 10. nóvember mun Nathalie
Jacqueminet fagstjóri forvörslu við Þjóðminjasafn Íslands gefa góð ráð
um meðhöndlun gamalla gripa og listaverka í heimahúsum.

Safngripir hafa margir verið geymdir
lengi í heimahúsum áður en þeir berast á safn. Við erum öll safnarar af
einhverju tagi og því er óhætt að segja að á hverju heimili sé einkasafn.
En hvernig er best að hugsa um sitt eigið safn til að koma í veg fyrir
skemmdir?

Nathalie mun veita ráðleggingar um staðsetningu,
meðhöndlun og geymslu málverka, teikninga, textíla, ljósmynda, smámuna
o.s.frv.

Fyrirlesturinn hefst kl. 12:05 í fyrirlestrasal
safnsins.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Forvarsla er þverfagleg starfsgrein sem
hefur það að markmiði að stuðla að langtímavarðveislu hvers konar menningarsögulegra
gripa, til dæmis listaverka, forngripa, bóka og handrita. Þar sem þessir
gripir geta verið af ólíku tagi, sérhæfa forverðir sig innan ákveðinna
greina forvörslu, svo sem málverkaforvörslu, forngripaforvörslu, textílforvörslu
og pappírsforvörslu.

Í forvörslu mætast ólíkar fræðigreinar,
svo sem efnafræði, eðlisfræði, líffræði, listasaga, fornleifafræði, sagnfræði,
þjóðfræði og siðfræði. Forvarsla gripa byggist á skilningi á vísindalegum
eiginleikum þeirra efna sem gripirnir eru skapaðir úr, hvernig þessi efni
eldast og bregðast við áhrifum umhverfisins. Þessi vitneskja gerir forvörðum
kleift að koma í veg fyrir skemmdir á gripum með því ð hefta eyðileggjandi
áhrif umhverfisins. Einnig er sögulegt (menningarsögulegt og listsögulegt)
samhengi gripanna mikilvægt og getur því haft mikil áhrif á meðferð þeirra.
Öll efni sem notuð eru í viðgerðir eru vandlega valin með tilliti til þess
að þau skaði ekki gripina og að unnt sé að fjarlægja þau síðar.

Með bestu kveðju,

Helga Vollertsen

Kynningarstjóri

Þjóðminjasafni Íslands

v/Suðurgötu

101 Reykjavík

s. 5302222/gsm 8242039