Áttu forngrip í fórum þínum?

Þjóðminjasafn Íslands býður upp
á greiningu á gömlum gripum sunnudaginn 8. nóvember kl. 14-16.

Næstkomandi sunnudag býður Þjóðminjasafn
Íslands fólki að koma með forngripi og gamla muni í skoðun og greiningu.
Sérfræðingar um gamla gripi munu taka vel á móti öllum í forsalnum á 3.
hæð safnsins milli kl. 14-16.

Margir eiga í fórum sínum erfðagripi
eða ættargripi en vita lítið um uppruna þeirra og leikur þá kannski forvitni
á að þekkja á þeim nánari deili. Aðrir hafa fundið gripi í jörðu, til dæmis
þegar grafa hefur átt fyrir kartöflugarði eða sumarbústaðsgrunni, sem þeir
vilja fræðast um.

Gripir þurfa alls ekki að vera frá
miðöldum til þess að teljast gamlir og má í því samhengi benda á að grunnsýning
Þjóðminjasafnsins spannar öll 1200 árin í sögu Íslands byggðar, frá landnámstíma
til 20. aldar. Margar nýjungar síðustu áratuga eru nú orðnar ,,gamlar“
eða ,,fornlegar“.

Tekið skal fram að einungis verður
reynt að greina muni með tilliti til aldurs, efnis, uppruna o.s.frv. en
starfsmenn safna meta ekki verðgildi gamalla gripa. Eigendur taka gripina
með sér aftur að lokinni skoðun.

Þriðjudaginn 10. nóvember kl 12:05
gefst áhugasömum síðan kostur á að fræðast um meðferð gamalla gripa í hádegisfyrirlestri
í Þjóðminjasafninu. Þá mun Nathalie Jacquement forvörður gefa góð ráð um
meðhöndlun og varðveislu gripa og listaverka í heimahúsum.

Með bestu kveðju,

Helga Vollertsen

Kynningarstjóri

Þjóðminjasafni Íslands

v/Suðurgötu

101 Reykjavík

s. 5302222/gsm 8242039