Kynning á starfsemi munasafns Þjóðminjasafns
Íslands

Þriðjudaginn 27.  október kynnir
Lilja Árnadóttir fagsjóri starfsemi munasafns Þjóðminjasafns Íslands og
söfnun og skráningu sem fer fram á vegum þess. Kynningin er hluti af hádegisfyrirlestraröð
Þjóðminjasafnsins, en í fyrirlestraröð haustsins gefst áhugasömum færi
á að kynna sér hluta þess fjölbreytta starfs sem fer fram í Þjóðminjasafninu.

Fyrirlesturinn hefst kl. 12:05 í fyrirlestrasal
safnsins.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Í Þjóðminjasafni Íslands er varðveitt
mikið magn gripa af margvíslegu tagi. Greint verður frá stærð, eðli og
umfangi safnsins en það var stofnað 24. febrúar 1863 og hét þá Forngripasafn.
Stofngjöf safnsins var haugféð úr kumli að Baldursheimi í Mývatnssveit
auk nokkurra muna sem sr. Helgi Sigurðsson á Melum færði safninu.

Fyrstu áratugina lögðu forstöðumenn safnsins
áherslu á að útvega gripi frá fyrstu öldum Íslandsbyggðar og gripi sem
flokkast gætu sem listgripir. Með fyrstu þjóðminjalögum sem sett voru 1907
var lögð áhersla á söfnun forngripa, verndun fornleifa og gildir sá lagabókstafur
efnislega síðan. Samkvæmt gildandi þjóðminjalögum er hlutverk Þjóðminjasafns
Íslands að safna, skrásetja, varðveita, forverja og rannsaka minjar, svo
sem forngripi, kirkjugripi, listmuni, nytjahluti sem gildi hafa fyrir varðveislu
menningarsögu þjóðarinnar. Þá skulu aflagðir kirkjugripir varðveittir í
Þjóðminjasafni Íslands.

Í Þjóðminjasafni er varðveitt mikið af
listgripum frá 17. 18. og 19. öld.  Þar ber mikið á útskornum munum,
s.s. rúmfjölum, kistlum, lárum og öskjum, útsaumuðum og ofnum textílum,
málmsmíði bæði úr silfri og látúni.  Atvinnuminjar úr hinu gamla bændasamfélagi
19. aldar og upphafi þeirrar 20. sem og sjóminjar skipa stóran sess í safninu.
Mikið er varðveitt af kvenbúningum og búningaskarti. Síðustu áratugi 20.
aldar hefur safnið veitt viðtöku ýmsum gripum sem flokkast sem samtímaminjar
og tilheyra daglegu lífi nútímamanna s.s. leikföng og búshlutir.

Með bestu kveðju,

Helga Vollertsen

Kynningarstjóri

Þjóðminjasafni Íslands

v/Suðurgötu

101 Reykjavík

s. 5302222/gsm 8242039

helga.vollertsen@thjodminjasafn.is