Fréttatilkynning:

Málþing um grafík á Íslandi

Föstudaginn 23. október verður haldið
málþing um grafík í Þjóðminjasafni Íslands í tengslum við sýninguna Svart
á hvítu – prentlistin og upplýsingabyltingin. Málþingið fer fram í
fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins og stendur frá kl. 15-17. Allir
eru velkomnir og aðgangur ókeypis.

Dagskráin er unnin í samvinnu við Íslenska
grafík og Prentarafélag Íslands. Ríkharður Valtingojer, Valgerður Hauksdóttir
og Gunnhildur Þórðardóttir flytja erindi fyrir hönd Íslenskrar grafíkur,
Friðrik Friðriksson prentráðgjafi gefur innsýn í breytingar í prentiðnaði
og Ágústa Kristófersdóttir sýningarstjóri Þjóðminjasafnsins kynnir sýninguna,
Svart á hvítu - prentlistin og upplýsingabyltingin. Að lokum verður
sýningin skoðuð.

Á sýningunni Svart á hvítu –
prentlistin og upplýsingabyltingin getur að líta gripi frá því á
fyrstu dögum prentsins á Íslandi, prentmót og bækur frá því á 16. öld og
fram á miðja 19. öld. Gripirnir gefa innsýn í þá tíma þegar bækur voru
settar og prentaðar án sjálfvirkni og hver bók var einstakur dýrgripur.
Sýnd eru prentmót sem Þjóðminjasafninu bárust árið 1868 og eiga uppruna
sinn í fyrstu íslensku prentsmiðjunum. Sum mótin eru sýnd með bókum þar
sem þau koma fyrir, en önnur eru sýnd með afþrykkum.

Með bestu kveðju,

Helga Vollertsen

Kynningarstjóri

Þjóðminjasafni Íslands

v/Suðurgötu

101 Reykjavík

s. 5302222/gsm 8242039

helga.vollertsen@thjodminjasafn.is