mætti ég biðja ykkur að gera okkur í Félagi íslenskra fræða þann greiða
að áframsenda meðfylgjandi tilkynningu á félagsmenn ykkar?
Með fyrirfram þökk og góðri kveðju,
Yelena Sesselja
Góðir hálsar,
annað rannsóknarkvöld Félags íslenskra fræða á haustmisseri 2009
verður
haldið næstkomandi fimmtudag, 22. október, kl. 20 í húsi
Sögufélagsins,
Fischersundi 3. Þar flytur Finnur
Friðriksson, lektor við Háskólann á Akureyri, erindið „Maður
er bara ekki Íslendingur ef maður fallbeygir ekki rétt“. Breytingar á
íslensku
nútímamáli og viðhorf málnotenda til þeirra.
Í erindinu verður fjallað um nýlega rannsókn á ýmsum breytingum, svo
sem
þágufallshneigð og nýrri þolmynd, sem fólk telur sig hafa orðið vart
við í
íslensku nútímamáli. Í rannsókninni var aðallega stuðst við upptökur á
hversdagslegu talmáli 108 þátttakenda á 9 mismunandi stöðum á landinu.
Einnig
voru tekin viðtöl við alla þátttakendur til að grafast fyrir um viðhorf
þeirra
til þeirra málbreytinga sem rannsóknin náði til. Meginniðurstöður
rannsóknarinnar eru þær að breyting-arnar virðast skemur gengnar en oft
er
talið og að heilt á litið er fremur lítill munur á milli þátttakenda
eftir
búsetu þeirra og öðrum félagslegum bakgrunnsþáttum. Niðurstöðurnar
benda einnig
til þess að nokkur fylgni sé milli viðhorfa og málnotkunar; þ.e. að
þeir sem
líta málbreytingar neikvæðum augum séu síður líklegir en aðrir til að
nota hin
nýju afbrigði. Þá má sjá að þau viðhorf sem þátttakendur láta í ljós
virðast
mjög lituð af þjóðerniskennd 19. aldar.
Finnur Friðriksson er með doktorspróf í málvísindum. Hann er
brautarstjóri
kennarabrautar Hug- og félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri.
eru velkomnir.
Bestu kveðjur,
Sesselja Helgadóttir
formaður Félags íslenskra fræða