Foldarskart

Fimmtudagin 15. október verður
sýningin Foldarskart opnuð í Þjóðminjasafni Íslands. Á sýningunni
má sjá ýmis verk Hörpu Jónsdóttur, en hún sigraði nýverið í keppninni “Þúsund
frábærar húfur”, eða “1000 Fabulous Knit Hats” á vegum útgáfufélagsins
Rockport Publishers.

Íslensk náttúra hefur veitt Hörpu
Jónsdóttur innblástur við gerð verka sinna. Fíngerður smágróður, fjörusteinar
og birtan við hafið endurspeglast í hlutum sem eru fínlegir og grófgerðir
í senn.

Verkin á sýningunni eru flest unnin
á árunum 2008 – 2009. Þau eru öll úr þæfðri íslenskri ull og útsaumuð
ýmist með bómull eða hörþræði.

Harpa er kennari, rithöfundur
og áhugaljósmyndari. Hún hefur fengist við hannyrðir og textílvinnu frá
barnæsku. Hún hefur sýnt verk sín í heimabyggð en þetta er fyrsta sýning
hennar í höfuðstaðnum.

Með bestu kveðju,

Helga Vollertsen

Kynningarstjóri

Þjóðminjasafni Íslands

v/Suðurgötu

101 Reykjavík

s. 5302222/gsm 8242039

helga.vollertsen@thjodminjasafn.is