Fréttatilkynning:

Ljósmyndasafn Íslands

Þriðjudaginn 13. október kynnir Inga
Lára Baldvinsdóttir Ljósmyndasafn Íslands í Þjóðminjasafni og þá söfnun
og skráningu sem fer fram á vegum þess. Kynningin er hluti af hádegisfyrirlestraröð
Þjóðminjasafnsins, en í fyrirlestraröð haustsins gefst áhugasömum færi
á að kynna sér hluta þess fjölbreytta starfs sem fer fram í Þjóðminjasafninu.

Fyrirlesturinn hefst kl. 12:05 í fyrirlestrasal
safnsins.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Ljósmyndir eru stærsti efnisflokkurinn
í safnkosti Þjóðminjasafns Íslands og eru í sérsafni sem heitir Ljósmyndasafn
Íslands. Tæplega 4 milljónir mynda eru í safninu. Þar er að finna úrval
þjóðlífs- og mannamynda frá því að ljósmyndin var fundin upp árið 1839
til aldamótanna 2000 en líka besta úrval teiknaðra, málaðra og prentaðra
manna- og þjóðlífsmynda frá Íslandi á 16.-19. öld.

Ljósmyndasafn Íslands veitir almenningi,
sérfræðingum, útgefendum, kvikmyndagerðarmönnum og öðrum aðgang að myndasöfnum
í sinni vörslu og selur og leigir eftirtökur af myndum sem varðveittar
eru í safninu.

Reglulega eru settar upp ljósmyndasýningar
í Þjóðminjasafni Íslands með myndum úr ljósmyndasafninu. Um þessar mundir
má sjá ljósmyndasýninguna Óþekkt augnablik í Bogasal, en það er
greiningarsýning á ljósmyndum frá tímabilinu um 1900-1960. Á sýningunni
er leitað aðstoðar safngesta við greiningu myndefnis og hefur það gefist
svo vel, að ætlunin er að skipta út myndunum fljótlega og setja upp nýjar
til greiningar.

Með bestu kveðju,

Helga Vollertsen

Kynningarstjóri

Þjóðminjasafni Íslands

v/Suðurgötu

101 Reykjavík

s. 5302222/gsm 8242039

helga.vollertsen@thjodminjasafn.is