Barnaleiðsögn

Sunnudaginn 4. október kl. 14:00
verður boðið upp á barnaleiðsögn í Þjóðminjasafni Íslands. Leiðsögnin er
að þessu sinni ætluð börnum á aldrinum 5-8 ára.

Ferðalagið hefst á slóðum landnámsmanna
á 9. öld. Þaðan liggur leiðin gegnum sýninguna og 1200 ára sögu þjóðarinnar
fram til nútímans.

Meðal þess sem verður skoðað er 800
ára gamall skór, dularfullur álfapottur, gömul hurð með fallegum myndum,
beinagrindur, hringabrynja og galdramunir. Rætt verður um það sem börnin
sjá en ýmsar spurningar vakna frammi fyrir gripum fortíðar. Á Þjóðminjasafninu
eru til dæmis alls konar spennandi sverð, axir og spjót sem eru um 1000
ára gömul.

Börnin fá líka að hlusta á frásögn barna
úr fortíðinni en í Þjóðminjasafninu er hægt að ná ,,símasambandi“ við
lítinn landnámsstrák og fleiri skemmtilega krakka.

Steinunn Guðmundardóttir safnfræðslufulltrúi
annast barnaleiðsögnina sem er um 45 mínútur að lengd.

Safnfræðsla Þjóðminjasafnsins stendur
fyrir öflugu barnastarfi og er ýmislegt í boði fyrir börn á safninu.

Börn eru alltaf velkomin í Þjóðminjasafnið
og fjölskyldufólk er hvatt til að fjölmenna.

Nánari upplýsingar veitir Steinunn Guðmundardóttir
í síma 530-2200 eða á netfangið kennsla@thjodminjasafn.is

Með bestu kveðju,

Helga Vollertsen

Kynningarstjóri

Þjóðminjasafni Íslands

v/Suðurgötu

101 Reykjavík

s. 5302222/gsm 8242039

helga.vollertsen@thjodminjasafn.is