Óþekkt augnablik

Laugardaginn 12. september verður
ljósmyndasýningin Óþekkt augnablik opnuð í Þjóðminjasafni Íslands.
Sýningin er greiningarsýning á ljósmyndum frá tímabilinu 1900-1960 úr Ljósmyndasafni
Íslands í Þjóðminjasafni. Leitað er aðstoðar safngesta við greiningu myndefnis.

Í hundrað ár hefur Þjóðminjasafn Íslands
safnað ljósmyndum. Söfnunin hefur haldist í hendur við þróun ljósmyndunar.
Ljósmyndir eru samofnar lífi eigandans, einskonar minningabanki sem hann
leitar í. Fólk lætur ljósmyndir ekki af hendi fyrr en þær missa gildi sitt.
Þannig voru það fyrst brúntóna harðspjaldamyndir af uppstilltu fólki í
sínu fínasta pússi sem bárust safninu til varðveislu. Seinna bættust í
sarpinn myndir af bæjum til sveita, götum þorpa, af fólki að störfum úti
og inni og íslensku landslagi með sínum fossum og fjöllum. Eftir að atvinnumenn
hættu að sitja einir að myndatökum og fólk fór sjálft að skapa sér eigin
myndasöfn fóru litlar skyndimyndir að berast. Vinafólkið á ferðalagi, nesti
snætt í laut, daglegt líf fjölskyldunnar heima og heiman. Það líður langt
frá myndatökunni og þar til mynd verður að safngrip og því er enn lítið
af litmyndum í safninu og enn lengra í land þar til símamyndir samtímans
munu berast ef að þær hverfa ekki við endurnýjun farsímans.

Stærsti hluti myndasafnanna eru samt
ekki pappírsmyndir heldur glerplötur og filmur frá atvinnu- og áhugamönnum.
Á þessari sýningu er brugðið upp myndum úr sex slíkum filmusöfnum. Þeim
er ætlað að sýna þverskurð af viðfangsefnum ljósmyndaranna og sýna þróun
íslensks samfélags á þeirri rúmu hálfu öld sem þær spanna. Jafnframt eru
þær gestaþraut þar sem leitað er í smiðju safngesta um þekkingu á því sem
myndirnar sýna. Hvar eru myndirnar teknar? Hvaða fólk er á þeim?

Í tengslum við sýninguna hefur verið
opnað sérstakt vefsvæði á heimasíðu Þjóðminjasafnsins. Þar er hægt að skoða
myndirnar og geta gestir skráð athugasemdir við þær ef þeir þekkja til
fólks eða staða á myndunum. Upplýsingarnar eru síðan yfirfarnar og skráðar
í gagnagrunn safnsins. Upplýsingar sem safnast með þessum hætti eru safninu
einkar mikilvægar því þær setja nafnlausar myndir í nýtt samhengi og segja
sögur sem annars hefðu fallið í gleymskunnar dá.

Með bestu kveðju,

Helga Vollertsen

Kynningarstjóri

Þjóðminjasafni Íslands

v/Suðurgötu

101 Reykjavík

s. 5302222/gsm 8242039

helga.vollertsen@thjodminjasafn.is