Kæru félagar

Enn eru nokkur laus pláss á Strandhögg 2009, landsbyggðarráðstefnu Sagnfræðingafélags Íslands og Félags þjóðfræðinga á Íslandi í samstarfi við Þjóðfræðistofu og ReykjavíkurAkademíuna. Ráðstefnan verður haldin á Ströndum, þar sem Þjóðfræðistofa hefur höfuðstöðvar sínar, helgina 12. - 14. júní 2009. Með þátttöku heimamanna og valinkunnra fræðimanna verður lögð áhersla á framsögu á vettvangi – allt frá Konungsvörðu og norður í Krossneslaug.

Umfjöllunarefni ráðstefnunnar er tengsl Íslands við umheiminn; dreifbýlis og höfuðstaðar; norðurs og suðurs; jaðars og miðju, bæði í staðbundnu samhengi sem þverþjóðlegu. Meðal annars verður vikið að blómlegri síðari alda handritamenningu á jaðri Evrópu; iðkun ímynda norðursins á erlendri grundu; iðnaði erlendra þjóða á Íslandi 17. aldar í óþökk konungs; förumönnum og þjóðfræði á mörkum mennskunnar; og framtíð fræða og lista á landsbyggðinni. Auk þess verður sagt frá þjóðfræði og sögu Stranda. Ráðstefnugestir munu gista eina nótt á Hólmavík og í nágrenni, en tekið verður vel á móti þeim bæði á Sauðfjársetri og Þjóðfræðistofu að ógleymdum öndvegisveitingastaðnum Café Riis. Þá verður farið í vettvangsferð norður í Árneshrepp. Fyrirlestrar verða á hinum ýmsu áföngum ferðarinnar og gist á Djúpavík.

Skráning á ráðstefnuna fer fram á netfanginu irisel@hi.is. Allar upplýsingar er að finna á heimasíðu ráðstefnunnar http://www.sagnfraedingafelag.net/strandhogg en dagskrá fylgir hér að neðan.

Verði er stillt í hóf. Þátttökugjald er 5000 kr. og eru allar rútuferðir (frá og til Reykjavíkur og á milli ráðstefnustaða) þar innifaldar.

Þetta á enginn að láta framhjá sér fara - bókið strax.

Drög að dagskrá

Föstudagurinn 12. júní 2009

17:00: Lagt af stað frá Reykjavík.

20:00: Móttaka og grill á Sauðfjársetrinu við Steingrímsfjörð.

Kristinn Schram forstöðumaður Þjóðfræðistofu og Arnar S. Jónsson framkvæmdastjóri Sauðfjársetursins bjóða fólk velkomið.

Viðar Hreinsson bókmenntafræðingur flytur hugvekju um „upprisu sauðkindarinnar“.

Sýningar og öldurhús á Hólmavík og Drangsnesi.

Gist í Steingrímsfirði (Sjá Gistimöguleika)

Laugardagurinn 13. júní 2009

9:00: Lagt af stað úr Steingrímsfirði.

Áfangar:

Selkollusteinn í Bjarnarfirði. Gunnvör Karlsdóttir íslenskufræðingur heldur erindi um Selkollu.

Klúka. Davíð Ólafsson sagnfræðingur talar um handritamenningu í Bjarnarfirði.

Eyjar, fornleifauppgröftur. Fróðleikur úr fórum Magnúsar Rafnssonar sagnfræðings um fornleifar um hvalveiðar útlendinga; hugsanlega samvinnu við heimamenn en í óþökk konungs.

Djúpavík. Hádegisverður undir skemmtilestri Guðbrands Benediktssonar sagnfræðings.

Gjögur. Sigurður Gylfi Magnússon sagnfræðingur fjallar um einsögurannsóknir sínar á mannlífi á Ströndum.

Stóra Ávík. Viðar Hreinsson bókmenntafræðingur fjallar stuttlega um Jón lærða þar sem hann bjó.

Kistan í Trékyllisvík. Már Jónsson sagnfræðingur skoðar hvað sé satt og logið um galdrabrennur við Kistuna.

Kört. Rakel Valgeirsdóttir þjóðfræðingur heldur erindi um álagabletti í Árneshreppi.

Krossneslaug í Norðurfirði. Sumarliði Ísleifsson greinir frá hugmyndinni um Norðrið. Ráðstefnugestir sletta úr klaufunum og geta fengið sér sundsprett.

20:30: Snæddur verður heimilislegur kvöldverður á Hótel Djúpavík og skemmtun fram eftir kvöldi.

Gist í Árneshreppi (Sjá Gistimöguleika)

Sunnudagurinn 14. júní

9:00 Lagt af stað til Hólmavíkur

12:00 Hádegismatur á Café Riis

13:00 -15:00: Opin málstofa um menningararf og jaðarmenningu. Á meðal fyrirlesara eru: Guðrún Ása Grímsdóttir sagnfræðingur, Jón Jónsson þjóðfræðingur, Bryndís Björgvinsdóttir þjóðfræðingur, Andrea Harðardóttir sagnfræðingur og Kristinn Schram þjóðfræðingur.

15.30 Galdrasýningin skoðuð .

17:00 Brottför til Reykjavíkur.

Félag þjóðfræðinga á Íslandi
www.akademia.is/thjodfraedingar

thjodfraedingar@gmail.com