Prisma hefst að nýju 27. apríl - umsóknarfrestur til 17. apríl

Prisma er nýtt þverfaglegt diplómanám sem Listaháskóli Íslands
og Háskólinn á Bifröst hafa skipulagt í samvinnu við Reykjavíkur
Akademíuna. Kennt verður í Hlíðarsmára 3 í Kópavogi á annarri hæð, í
húsnæði sem Eimskip lánar endurgjaldslaust til námsins.

Umsóknarfrestur rennur út 17. apríl kl. 16. Um 70 manns luku Prisma,
diplómanámi á vegum Háskólans á Bifröst og Listaháskóla Íslands í mars
síðastliðnum. Vegna mikillar eftirspurnar og verður Prisma endurtekið
27. apríl og lýkur 19. júní.

Metaðsókn var í Prisma sem hófst 2. febrúar og lauk 27. mars. Yfir
hundrað nemendur sóttu um í námið og hefur bæði andinn og afraksturinn
í náminu verið framar vonum. Námið var skipulagt sem viðbrögð
háskólanna við ástandinu í landinu og nú sitja námið nemendur á
aldrinum 20 til 65 ára, með mjög fjölbreyttan bakgrunn hvað menntun og
starfsgreinar varðar. Í nemendahópnum eru einstaklingar sem koma úr
fjármálageiranum, viðskiptum og verslun, grafískri hönnun, arkitektúr,
myndlist, leiklist, fyrirtækjarekstri, kennslu osfrv.

Námsgjald í Prisma er 140.000 krónur og geta nemendur sótt um
niðurgreiðslu á skólagjöldum frá stéttarfélögum, fagfélögum og
Vinnumálastofnun. Sem dæmi greiðir Blaðamannafélagið 100% skólagjöld
fyrir atvinnulausa félagsmenn, VR niðurgreiðir 50-70% af skólagjöldum
fyrir félagsmenn að gefnum ákveðnum skilyrðum og Samtök starfsmanna
fjármálafyrirtækja niðurgreiða helming skólagjalda. Skilyrði fyrir
inngöngu er stúdentspróf eða jafngildi þess, og hafa nemendur einnig
BA, BSc og meistaragráður.

Prisma er metið til 16 eininga (ECTS) á háskólastigi. Námið nýtist
sérstaklega þeim einstaklingum sem vilja horfa gagnrýnum og
uppbyggilegum augum á samtímann, efla færni sína í að starfa á fleiri
sviðum en áður og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Meginþáttur í aðferðafræði kennslu og fyrirkomulags er skapandi og
gagnrýnin hugsun en burðargreinar eru listfræði og heimspeki. Mörgum
tengdum fögum er fléttað saman við meginþátt námsins s.s. ímyndafræði,
menningarstjórnun, frumkvöðlafræði, hönnun og tíðaranda, myndmálssögu,
tónlistarsögu og -miðlun, skapandi skrifum, aðferðafræði myndlistar og
leikhúss, arkitektúr og skipulagi, miðlunarfræði, mannfræði,
markaðsfræði og stjórnun. Að auki er boðið upp á gestafyrirlestra einu
sinni í viku þar sem sérfræðingar segja frá því sem er að gerast í
stefnumótun, rannsóknum og nýsköpun í samfélaginu og utan
landssteinanna.

Yfir 50 sérfræðingar koma að náminu

Yfir fimmtíu sérfræðingar víðsvegar að úr samfélaginu koma að
kennslu í Prisma. Meðal þeirra eru Jón Ólafsson heimspekingur,
Hallgrímur Helgason rithöfundur, Haukur Ingi Jónasson, guðfræðingur og
sálgreinandi, Njörður Sigurjónsson, viðskiptafræðingur og
heimspekingur, Kristín Eysteinsdóttir leikstjóri, Ágúst Einarsson,
rektor Háskólans á Bifröst, Andri Snær rithöfundur, Guðmundur Oddur
Magnússon (Goddur), prófessor við Listaháskólann, Sveinbjörn I.
Baldvinsson, handritshöfundur, Viðar Hreinsson framkvæmdarstjóri
Reykjavíkur Akademíunnar, Hjálmar Ragnarsson, rektor LHÍ og tónskáld,
Sigríður Ingvarsdóttir, rekstrarstjóri frumkvöðlaseturs hjá
Nýsköpunarmiðstöð, Sumarliði R. Ísleifsson sagnfræðingur, Þorvaldur
Þorsteinsson, rithöfundur og myndlistarmaður, Dóra Ísleifsdóttir,
fagstjóri í grafískri hönnun og Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir hönnuður.

Markmið með náminu

1. Þverfagleg þekking

Nemendur styrki þverfaglega menntun sína sem gerir þeim kleift að
setja ólíkar starfsgreinar, fræðigreinar, hugmyndir og hluti í samhengi
og starfa á fleiri sviðum en áður.

2. Fleiri verkfæri í verkfæratöskuna

Nemendur öðlist þau verkfæri, þekkingu, reynslu og stuðning sem geta
nýst þeim til að efla stöðu sína sem uppbyggilegir, skapandi og
gagnrýnir þátttakendur í samfélaginu og láta framsæknar hugmyndir verða
að raunverulegum verkefnum.

3. Menntun á háskólastigi

Að námi loknu fá nemendur diplóma sem metið er til 16 eininga (ECTS)
á háskólastigi. Nemendur sem ætla sér frekari menntun við Háskólann á
Bifröst eða Listaháskóla Íslands geta fengið hluta námsins metið inn í
nám á bakkálár- og meistarstigi, að gefnum ákveðnum skilyrðum.

4. Umbreyting

Lykilorðið í náminu er umbreyting. Nemendur fá tækifæri til að
gaumgæfa þær umbreytingar sem eru að eiga sér stað í samfélaginu útfrá
fjölbreyttum sjónarhornum undir leiðsögn sérfræðinga. Í slíku umhverfi
verða vandamál að tækifærum, hindranir að flóðgáttum og
hugmyndafræðilegt hrun að upphafi á nýjum og spennandi tímum.

Skipulag námsins og fyrirkomulag

Kennsla fer fram á hverjum virkum degi í Hlíðasmára 3 í Kópavogi og
í þrjá miðvikudaga fer kennsla fram í Háskólanum á Bifröst.
Heildarfjölda nemenda verður skipt niður í fjóra hópa sem hver hefur
sinn hópstjóra eða umsjónarkennara. Námið er á háskólastigi og ætlað
fólki sem hefur að lágmarki stúdentspróf eða jafngildi þess.

Nánari upplýsingar veitir:

Hrund Gunnsteinsdóttir forstöðumaður Prisma í síma 895 6371/4584508 eða á
hrund@lhi.is Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar um námið á heimasíðum skólanna: www.lhi.is og www.bifrost.is

ReykjavíkurAkademían

Hringbraut 121, 107 Reykjavík
Sími/Phone: + 354 562 8561
Fax: + 354 562 8528
Netfang/email: ra@akademia.is
Veffang/website: www.akademia.is