<html><body style="word-wrap: break-word; -webkit-nbsp-mode: space; -webkit-line-break: after-white-space; "><br><div><br><div>Begin forwarded message:</div><br class="Apple-interchange-newline"><blockquote type="cite"><div><div style="margin-top: 0px; margin-right: 0px; margin-bottom: 0px; margin-left: 0px; "><font face="Helvetica" size="3" color="#000000" style="font: 12.0px Helvetica; color: #000000"><b>From: </b></font><font face="Helvetica" size="3" style="font: 12.0px Helvetica">"Sigurður E. Vilhelmsson" &lt;<a href="mailto:s.vilhelmsson@gmail.com">s.vilhelmsson@gmail.com</a>></font></div><div style="margin-top: 0px; margin-right: 0px; margin-bottom: 0px; margin-left: 0px; "><font face="Helvetica" size="3" color="#000000" style="font: 12.0px Helvetica; color: #000000"><b>Date: </b></font><font face="Helvetica" size="3" style="font: 12.0px Helvetica">14. október 2008 09:28:00 GMT+00:00</font></div><div style="margin-top: 0px; margin-right: 0px; margin-bottom: 0px; margin-left: 0px; "><font face="Helvetica" size="3" color="#000000" style="font: 12.0px Helvetica; color: #000000"><b>To: </b></font><font face="Helvetica" size="3" style="font: 12.0px Helvetica"><a href="mailto:admin@1627.is">admin@1627.is</a></font></div><div style="margin-top: 0px; margin-right: 0px; margin-bottom: 0px; margin-left: 0px; "><font face="Helvetica" size="3" color="#000000" style="font: 12.0px Helvetica; color: #000000"><b>Subject: </b></font><font face="Helvetica" size="3" style="font: 12.0px Helvetica"><b>Ráðstefna í Vestmannaeyjum um næstu helgi</b></font></div><div style="margin-top: 0px; margin-right: 0px; margin-bottom: 0px; margin-left: 0px; min-height: 14px; "><br></div> </div><div dir="ltr"><span style="font-weight:bold">Þeir skildu eftir sig sviðna jörð...</span><br><br>Árið 1627 lagði séra Ólafur Egilsson upp í langferð frá Alsír til Íslands. Hann var sendur af stað, peningalaus og allslaus, til að heimta lausnargjald fyrir samlanda sína sem rænt hafði verið í Tyrkjaráninu á Íslandi sex mánuðum fyrr. Ferðalag hans norður alla Evrópu tók níu mánuði og lá leið hans m.a. um Ítalíu, Frakkland, Holland og Danmörku. Á þessari ferð treysti hann því statt og stöðugt að Drottinn myndi leiða hann í gegnum þrautirnar. Eftir að heim kom ritaði hann reisubók, sem fram til þessa hefur aðeins verið til á íslensku.<br> <br>Tyrkjaránið 1627 er almennt talið einn af skelfilegri atburðum Íslandssögunnar. Herjað var á Austfirðina, Suðurnesin og Vestmannaeyjar og talið er að hátt í fjögur hundruð Íslendingum hafi verið rænt í ránsferð alsískra sjóræningja. &nbsp;Siglt var með þá suður Atlantshafið uns komið var í höfn í Algeirsborg þar sem fólkið var selt á þrælamarkaði.<br> <br><span style="text-decoration:underline">Í tilefni af útkomu enskrar þýðingar á Reisubók séra Ólafs Egilssonar heldur Sögusetur 1627 alþjóðlega ráðstefnu þar sem munu koma saman íslenskir og alþjóðlegir fræðimenn til að fjalla um Tyrkjaránið og skoða það í sögulegu samhengi á alþjóðavísu.</span><br> <br>Gestir ráðstefnunnar verða m.a. alsírski rithöfundurinn og fræðimaðurinn Mohamed Magani og Robert C. Davis frá Ohio háskóla sem fjalla um Tyrkjaránið út frá fólksflutningum og hnattvæðingu. Norski fræðimaðurinn Torbjorn Odegaard flytur fyrirlestur um Norður-Afríku séða með augum tveggja skandinavískra þræla. Karl Smári Hreinsson og Adam Nichols ræða um reisu séra Ólafs Egilssonar og Þorsteinn Helgason, sagnfræðingur ásamt Steinunni Jóhannesdóttur, rithöfundi, fjalla um ránin út frá reynslu Íslendinga.<br> <br>Ráðstefnan er haldin í Alþýðuhúsinu í Vestmannaeyjum og stendur 17.-19. október. &nbsp;Fyrirlestrarnir eru öllum opnir og aðgangur ókeypis. Upplýsingar um dagskrá, fyrirlesara og skráningu er að finna á <a href="http://www.1627.is" target="_blank">www.1627.is</a>.<br> <br>---------------------<br><br>Nánari upplýsingar veita<br><br>Steinunn Jóhannesdóttir<br>rithöfundur<br>Sími 562 4432<br><br>Sigurður Vilhelmsson,<br>formaður stjórnar Söguseturs 1627<br>Sími 893 9402</div></blockquote></div><br></body></html>