Fréttatilkynning frá Menningarmiðstöðinni
Gerðubergi

Kynjaskepnur úr íslenskum
þjóðsögum

3. maí – 7. september

Jón Baldur Hlíðberg teiknari opnar sýningu
í Gerðubergi

laugardaginn 3. maí kl. 15.

Jón Baldur og Sigurður Ægisson þjóðfræðingur

verða með leiðsögn um sýninguna kl.
15.30.

Allir velkomnir!

Hefur þú séð skoffín eða
skuggabaldur?

Á sýningunni Kynjaskepnur úr íslenskum
þjóðsögum í Gerðubergi gefur að líta teikningar eftir Jón Baldur Hlíðberg
sem birtast munu í bókinni Íslenskar kynjaskepnur. Margir hafa heyrt um
skepnurnar á sýningunni en nú gefst tækifæri til að sjá myndir af þeim
með eigin augum. Af kunnum skepnum má nefna; skoffín, skuggabaldur, nykur,
fjörulalla, moðyrmi og öfugugga.

Jóni Baldri finnst best við vinnu sína
að hafa sjálfa fyrirmyndina á staðnum en á þann hátt verður myndlýsingin
bæði rétt og nákvæm. Við teiknun á kynjaskepnunum var það hins vegar ekki
mögulegt þar sem þær eru lítt aðgengilegar. Lýsingar á þeim ásamt víðtækri
þekkingu teiknarans á dýrafræði komu því að góðum notum. Nákvæmni og listfengi
Jóns Baldurs gæðir kynjaskepnurnar lífi þannig að sögur og sagnir lifna
við. Sýningin höfðar til allra aldurshópa sem kunna að meta fallegar myndir
og skemmtilegar sögur.

Bókin Íslenskar kynjaskepnur er gefin
út hjá Forlaginu. Höfundur texta er Sigurður Ægisson, þjóðfræðingur, en
teikningar gerir Jón Baldur Hlíðberg. Bókin sviptir hulunni af þeim hluta
þjóðsagnaarfsins sem snertir furðuheim dýranna. Fjallað er á skemmtilegan
hátt um náttúrufræði kynjaskepna úr íslenskum þjóðsögum sem forfeður okkar
og mæður trúðu um aldir að tilheyrðu raunveruleikanum. Markmið bókarinnar
er að gæða þessar sögur nýju lífi í þeirri von að kynslóðir framtíðar taki
þær upp á sína arma og fóstri þær.

Jón Baldur (f. 1957) sameinar áhuga
sinn á náttúrufræði og myndlýsingum í starfi sínu sem teiknari. Hann stundaði
nám við Myndlistaskóla Reykjavíkur og Myndlista- og handíðaskóla Íslands
1982-1985. Strax að námi loknu hóf Jón Baldur störf við myndlýsingar meðfram
öðrum störfum en hin síðari ár hefur hann helgað sig algerlega teiknarastarfinu.
Jón Baldur er löngu landsþekktur fyrir myndskreytingar sínar sem birst
hafa í bókum. Má þar nefna stórvirkin Íslenskir fuglar, Íslensk spendýr
og Íslenskir fiskar í ritröðinni Alfræði Vöku-Helgafells. Bækur sem Jón
Baldur hefur myndskreytt hafa hlotið fjölda viðurkenninga, þar á meðal
Íslensku bókmenntaverðlaunin. Teikningar og vatnslitamyndir eftir Jón hafa
einnig birst í ýmsum útgáfum svo sem í bæklingum, á fræðsluskiltum, frímerkjum,
kennslubókum, tímaritum og vefsíðum. Á heimasíðu Jóns Baldurs www.fauna.is
er að finna myndabanka.

Sýningin stendur frá 3. maí – 7. september
og er opin virka daga frá kl. 11-17; og um helgar frá 13-16. Athugið: Lokað
er um helgar í júní og ágúst og Gerðuberg er lokað í júlí.

Guðrún Dís Jónatansdóttir

Verkefnastjóri / Project Manager

Menningarmiðstöðin Gerðuberg

Gerðubergi 3-5, 111 Reykjavík

Sími / Tel.  + 354 575 7706 / +354 575 7700

GSM / Mobil: +354 899 1969

Netfang / e-mail: gudrun.dis.jonatansdottir@reykjavik.is

Veffang / Webpage: www.gerduberg.is

"Sá sem fyrir tilviljun, mistök eða án sérstakrar
heimildar tekur við símskeytum, myndum eða öðrum fjarskiptamerkjum og táknum
eða hlustar á símtöl má ekki skrá neitt slíkt hjá sér eða notfæra sér það
á nokkurn hátt. Jafnframt ber honum að tilkynna sendanda að upplýsingar
hafi ranglega borist sér. Skylt er að gæta fyllsta trúnaðar í slíkum tilfellum,
sbr. 5. mgr. 47, gr. fjarskiptalaga nr. 81/2003"

Reglur um trúnað í tölvupóstsamskiptum: http://www.reykjavik.is/trunadur

Reglur um trúnað í tölvupóstsamskiptum: http://www.reykjavik.is/trunadur