Textíllistaverkið Skammdegi

Ingibjörg Styrgerður Haraldsdóttir
sýnir

Síðustu forvöð eru að sjá textíllistaverkið
Skammdegi eftir Ingibjörgu Styrgerði Haraldsdóttur um helgina. Verkið hefur
verið til sýnis í anddyri Þjóðminjasafnsins að undanförnu. Ingibjörg Styrgerður
er fædd árið 1948. Hún stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands
árin 1967-1974 og við Hochschule für angevandte Kunst í Vín 1974-1979.

Ingibjörg Styrgerður hefur haldið
sex einkasýningar á Íslandi og í Svíþjóð og tekið þátt í samsýningum á
íslandi, í Eistlandi, Austurríki, Bandaríkjunum, Svíþjóð, Finnlandi, Belgíu,
Danmörku og Úkraínu. Hún hefur unnið til ýmissa viðurkenninga fyrir list
sína, fékk starfslaun listamanna árið 1989 og 1998-1999, og viðurkenningu
fyrir tillögu að listskreytingu í Ráðhúsi Reykjavíkur árið 1991. Verk hennar
eru í eigu einkaaðila og stofnana, meðal annars í Alþingi Íslendinga.

Ingibjörg Styrgerður kenndi við
Myndlista- og handíðaskóla Íslands frá 1981-1983, en frá 1990-2004 rak
hún einkarekinn myndlistaskóla. Frá 1993 hefur hún ræktað og unnið eigin
lín.

Bestu kveðjur / Best regards

Rúna K. Tetzschner

kynningarstjóri / Public Relation Manager

Þjóðminjasafn Íslands / National
Museum of Iceland

Suðurgötu 41 - 101 Reykjavík

fars. 824-2039, s. 530-2222 eða
5302248

netf. runa@thjodminjasafn.is

veff. http://www.thjodminjasafn.is