Skrímsladagskrá
í Þjóðminjasafni Íslands

9. mars klukkan 12
og 13:30

Greiningardagur:
Áttu forngrip í fórum þínum?

klukkan 14-16

Sunnudaginn 9. mars verður mikið
um að vera í Þjóðminjasafni Íslands. Í samvinnu við Þórbergssmiðju verður
efnt til Skrímsladagskrár og er börnum boðið í skrímsla- og kynjaveruleik
klukkan 12 og 13:30. Helga Einarsdóttir safnfræðslufulltrúi tekur á móti
börnunum og spjallar um skrímsli og síðan mega þau leita að ófreskjum og
kynjaverum í safninu. Einnig er sérstakt teiknihorn þar sem skrímslafróð
börn geta teiknað myndir af skrímslum.

Skrímsladagskrá Þjóðminjasafnsins
fer fram í samvinnu við Skrímslastofu sem Mímir, félag nemenda Íslenskuskorar
í Heimspekideild Háskóla Íslands stendur fyrir í tengslum við Þórbergssmiðju
sem haldin er í Háskóla Íslands helgina 8.-9. mars.
Mímisliðar munu klæðast skrímsla- og þjóðsagnaverubúningum og ærslast með
börnunum í Skrímslastofunni klukkan 11:30-16:30 og fara meðal annars með
þau í heimsókn í Þjóðminjasafnið. Börnum sem áhuga hafa á skrímslum er
þó líka velkomið að mæta beint í safnið klukkan 12 og 13:30.

Í tilefni þess að þann 12. mars
verða 120 ár liðin frá fæðingu Þórbergs Þórðarsonar efna Hugvísindastofnun
og Bókmenntafræðistofnun Háskóla Íslands, Mímir, Forlagið og Morgunblaðið
til Þórbergssmiðju helgina 8.-9. mars. Á afmælisdegi rithöfundarins verður
auk þess haldið málþing
á Þórbergssetri á Hala í Suðursveit.

Þennan sama dag er almenningi boðið
að koma í Þjóðminjasafnið með forngripi eða gamla muni í skoðun og greiningu.
Sérfræðingar Þjóðminjasafnsins taka á móti fólki klukkan 14-16.

Allir eru velkomnir. Börn og skrímslafræðingar
eru hvött til að fjölmenna.

Bestu kveðjur / Best regards

Rúna K. Tetzschner

kynningarstjóri / Public Relation Manager

Þjóðminjasafn Íslands / National
Museum of Iceland

Suðurgötu 41 - 101 Reykjavík

fars. 824-2039, s. 530-2222 eða
5302248

netf. runa@thjodminjasafn.is

veff. http://www.thjodminjasafn.is