Varðveisla
texta: hvað er það?

Hádegisfyrirlestur Sagnfræðingafélags
Íslands í Þjóðminjasafninu 23. febrúar klukkan 12:05

23. febrúar klukkan 12:05 flytur
Már Jónsson fyrirlesturinn Varðveisla texta: hvað er það? í Þjóðminjasafni
Íslands. Fyrirlesturinn er hluti af hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags
Íslands. Varðveisluhugtakið verður tekið til umræðu og er fullyrt að það
feli ekki eingöngu í sér vörslu eða gæslu á menningarlegum og sögulegum
verðmætum, svo sem til að forðast skemmdir eða glötun.

Enn mikilvægara er að þekkingu um
og skilningi á þessum verðmætum sé veitt til samtímans. Dæmi um slíkt geta
verið endurgerð húsa, sýningar af ýmsu tagi eða brýr og slóðar sem auðvelda

göngu að torveldum sögustöðum. Í erindinu verða færð rök fyrir því að vönduð
varðveisla á textum frá fyrri öldum felist jafnt í vönduðum geymslum með
réttu rakastigi og nákvæmri skráningu,

en ekki síst í öflugri útgáfu í almanna þágu, jafnt í viðamiklum og metnaðarfullum
ritröðum sem og á handhægum bókum til afþreyingar og uppfræðslu.

Már Jónsson er prófessor í sagnfræði
við Háskóla Íslands.

Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.

Frekari upplýsingar veitir Guðbrandur
Benediktsson, varaformaður Sagnfræðingafélags Íslands

www.sagnfraedingafelag.net

Bestu kveðjur / Best regards

Rúna K. Tetzschner

kynningarstjóri / Public Relation Manager

Þjóðminjasafn Íslands / National
Museum of Iceland

Suðurgötu 41 - 101 Reykjavík

fars. 824-2039, s. 530-2222 eða
5302248

netf. runa@thjodminjasafn.is

veff. http://www.thjodminjasafn.is