Hvað er að heyra?

Varðveisla munnlegra heimilda

Þriðjudaginn 12. febrúar
klukkan 12:05-12:55 flytur Unnur María Bergsveinsdóttir erindi í hádegisfyrirlestraröð
Sagnfræðingafélags Íslands. Fyrirlesturinn Hvað er að heyra? fjallar
um varðveislu munnlegra heimilda og er haldinn í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins.
Munnleg saga hefur í seinni tíð hlotið fulla viðurkenningu sem sagnfræðileg
aðferð og nýtur sívaxandi vinsælda meðal þeirra sem fást við samtímasögu.

Enn þá er bein íhlutun
fræðimannsins í tilurð þeirrar heimilda sem hann fæst við þó sterkt einkenni
aðferðarinnar, sér í lagi hér á Íslandi. Þetta má að miklu leyti rekja
til þeirrar staðreyndar að varðveisla munnlegra heimilda einkennist enn
í dag, hérlendis sem erlendis, af bæði óvissu hvað verklagi viðvíkur og
skorti á samræðu um ýmis grunnatriði. Þetta veldur því að munnlegar heimildir
eru í mörgum tilfellum lítt aðgengilegar öðrum en þeim sem þær skópu. Umfjöllunarefni
erindisins eru þær spurningar sem varðveisla munnlegra heimilda vekur auk
þess sem skyggnst verður í geymslur íslenskra safna og spurt, hvað er að
heyra?

Unnur María Bergsveinsdóttir
er verkefnastjóri hjá Miðstöð munnlegrar sögu.

Frekari upplýsingar
veitir Guðbrandur Benediktsson, varaformaður Sagnfræðingafélags Íslands
www.sagnfraedingafelag.net

Bestu kveðjur / Best regards

Rúna K. Tetzschner

kynningarstjóri / Public Relation Manager

Þjóðminjasafn Íslands / National
Museum of Iceland

Suðurgötu 41 - 101 Reykjavík

fars. 824-2039, s. 530-2222 eða
5302248

netf. runa@thjodminjasafn.is

veff. http://www.thjodminjasafn.is