Nýr vefur Þjóðminjasafns Íslands
hlýtur tilnefningu til Vefverðlaunanna 2007

Nýr vefur Þjóðminjasafnsins var
opnaður í október 2007 eftir mikla undirbúningsvinnu og gagngera endurskoðun.
Vefurinn tekur til allra sviða Þjóðminjasafns Íslands og er markmiðið að
hann endurspegli umfangsmikla starfsemi stofnunarinnar á sem skýrastan
hátt, jafnt sýningar og viðburði í safnhúsinu sem fræðslu- og rannsóknarstarf.
Reynt er að hafa upplýsingar aðgengilegar og leiðir að þeim einfaldar.
Menningarsögunni er miðlað í máli og myndum á smekklegan hátt. Vefur Þjóðminjasafnsins
er í sífelldri tilurð og verður áfram unnið að uppbyggingu hans.

Umsjón með vef Þjóðminjasafnsins
hefur Rúna K. Tetzschner kynningarstjóri, en hönnun vefsins annaðist Hugsmiðjan.

Samtök vefiðnaðarins (SVEF) hafa
tilkynnt hvaða
vefi dómnefnd Íslensku vefverðlaunanna 2007 hafa valið til úrslita
í þeim sex flokkum sem keppt er í. Vefur Þjóðminjasafns Íslands hefur hlotið
tilnefningu til Vefverðlaunanna í flokknum besti vefur í almannaþjónustu
og er einn af fimm vefjum sem keppa til úrslita í þeim flokki.

Flokkurinn besti vefur í almannaþjónustu
nær til vefsvæða sem haldið er úti af hinu opinbera, svo sem stofnana og
sveitarfélaga, en jafnframt til vefja félagasamtaka, verkalýðsfélaga eða
annarra sambærilegra aðila.

Hinir flokkarnir sem keppt er í
eru 1.) besti sölu- og þjónustuvefurinn, 2.) besti fyrirtækjavefurinn,
3.) besti afþreyingarvefurinn, 4.) besta útlit og viðmót og 5.) besti einstaklingsvefurinn.

Samtök vefiðnaðarins (SVEF) efna
árlega til samkeppni um Vefverðlaun og vefakademían velur úr tilnefndum
vefjum þá vefi sem skara þykja fram úr í hverjum flokki. Vefakademíuna
skipa einstaklingar sem starfa í vefgeiranum, hafa sérfræðiþekkingu og
brennandi áhuga á vefmálum.

Vefakademían hefur valið fimm vefi
í hverjum flokki sem eru tilnefndir til Íslensku vefverðlaunanna. Í framhaldinu
verður einn vefur valinn sem sigurvegari í hverjum flokki og verður tilkynnt
um úrslitin þann 1. febrúar.

Rúna K. Tetzschner

kynningarstjóri / Public Relation Manager

Þjóðminjasafn Íslands / National
Museum of Iceland

Suðurgötu 41 - 101 Reykjavík

fars. 824-2039 , s. 530-2222 eða 5302248

netf. runa@thjodminjasafn.is

veff. http://www.thjodminjasafn.is