Leiðsögn um Undrabörn

Einar Falur Ingólfsson
ljósmyndari og nemandi Mary Ellen Mark ,,eys úr viskubrunnum“ um sýningu
hennar í Þjóðminjasafninu 8. janúar klukkan 12:05

Þriðjudaginn 8. janúar klukkan 12:05
verður fyrsta sérfræðileiðsögn Þjóðminjasafnsins á nýju ári. Að þessu sinni
býðst gestum leiðsögn hjá Einari Fali Ingólfssyni ljósmyndara um ljósmyndasýninguna
Undrabörn
sem nú stendur yfir í Myndasal Þjóðminjasafnsins. Þar getur að líta myndir
sem hinn heimsþekkti bandaríski ljósmyndari Mary
Ellen Mark hefur tekið
af fötluðum börnum á Íslandi.

Ljósmyndirnar sýna veruleika þessara
barna í samtímanum, en Mary Ellen Mark er þekkt fyrir myndir þar sem horfst
er í augu við raunveruleikann. Á sýningunni er sjónum einnig beint að skólaumhverfi
barnanna í ljósmyndum Ívars
Brynjólfssonar á Veggnum
og listsköpun barnanna sjálfra er til sýnis í anddyrinu.

Í tengslum við sýninguna Undrabörn
gaf Þjóðminjasafn Íslands út samnefnda bók með ljósmyndum Mary Ellen Mark
og Ívars Brynjólfssonar. Bókin hefur verið tilnefnd til Íslensku
bókmenntaverðlaunanna
í flokki fræðirita og bóka almenns efnis árið 2007. Einar Falur Ingólfsson
ritar inngang en formáli er eftir Margréti Hallgrímsdóttur þjóðminjavörð.

Nú gefst tækifæri til að fá leiðsögn
um sýninguna en brátt verða síðustu forvöð að sjá hana. Vegna mikillar
aðsóknar og góðra undirtekta hefur þó verið ákveðið að framlengja henni
til 3. febrúar.

Einar Falur Ingólfsson hefur á síðustu
tveimur áratugum unnið með Mary Ellen Mark að ýmsum verkefnum, bæði í Bandaríkjunum
og hér á landi. Meðal kunnustu verkefna hennar eru líf heimilislausra ungmenna
í Seattle, starf líknarstofnunar móður Teresu í Kolkata, vændishús í Mumbay
og lífið í indversku fjölleikahúsi.

Í leiðsögninni á þriðjudaginn mun
Einar Falur fjalla um aðdraganda sýningarinnar í Þjóðminjasafninu og verkefnið
almennt. Hann mun rekja feril Mary Ellen Mark og kvikmyndagerðarmannsins
Martin Bell sem starfaði með henni við undirbúning og segja frá hugmyndum
listamannanna um verkefnið.

Martin Bell gerði heimildamynd um
Alexander Viðar Pálsson, einn nemanda Öskjuhlíðarskóla, og er hún sýnd
daglega frá klukkan 13 í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins meðan á ljósmyndasýningunni
stendur. Milli ljósmynda Mary Ellen Mark og kvikmyndar Martin Bell er mikilvægt
samspil sem dýpkað getur upplifunina af sýningunni í heild. Þeir sem skoða
sýninguna eða bókina ættu því ekki að láta kvikmyndina fram hjá sér fara.

Mary Ellen Mark kom til Íslands
á árið 2006 og myndaði meðal annars nemendur í Öskjuhlíðarskóla en hún
heillaðist mjög af því starfi sem þar er unnið. Í kjölfarið leitaði Þjóðminjasafn
Íslands eftir samstarfi við hana um að ljósmynda líf fatlaðra barna á Íslandi.
Myndataka Mary Ellen Mark fyrir sýninguna fór aðallega fram í Öskjuhlíðarskóla,
Safamýrarskóla og Lyngási.

Þetta metnaðarfulla verkefni hlaut
meðal annars styrk úr Menningarsjóði Glitnis. Árangurinn er sýningin Undrabörn
og samnefnd sýningarbók.

Fólk er hvatt til að fjölmenna á
leiðsögn Einars Fals Ingólfssonar 8. janúar en sýningin stendur til 3.
febrúar.

Bestu kveðjur / Best regards

Rúna K. Tetzschner

kynningarstjóri / Public Relation Manager

Þjóðminjasafn Íslands / National
Museum of Iceland

Suðurgötu 41 - 101 Reykjavík

fars. 824-2039, s. 530-2222 eða
5302248

netf. runa@thjodminjasafn.is

veff. http://www.thjodminjasafn.is