Hugarheimur miðaldakristni.

Jón Björnsson sálfræðingur ,,eys
úr viskubrunnum” í Þjóðminjasafni Íslands.

Næstkomandi þriðjudag 27. nóvember
klukkan 12:05 gengur Jón Björnsson sálfræðingur með gestum Þjóðminjasafnsins
um hluta grunnsýningarinnar
og um sérsýninguna í Bogasalnum, Á
efsta degi - býsönsk dómsdagsmynd á Hólum.

Jón fjallar um hugmyndaheim eða
heimsmynd kaþólsku kirkjunnar á ofanverðum miðöldum, meðal annars með hliðsjón
af dómsdagsmyndum. Hann staldrar við nokkur dæmi á safninu sem sýna myndmál
þessa heims og vísa til hans. ,,Dómsdagmyndir þessa tíma,“ segir Jón Björnsson,
,,voru eins konar myndasögur eða kennslumynd fyrir almúgann um þessa heimsmynd,
- ekki síst ólæsa. Þær áttu að brýna fyrir fólki rétta hegðun, með því
að benda á hvað myndi henda ef það breytti rangt. Samkvæmt heimsmynd miðaldakristni
voru jarðneskir menn leiksoppar sífelldrar togstreitu góðs og ills. Annars
vegar var Guð, Kristur, Guðsmóðir, englar, postular og dýrlingar á himnum,
og kirkjan útibú þeirra á jörðinni. Hins vegar var Kölski, engill sem snérist
til illsku, og árar hans með höfuðstöðvar í Helvíti, sem sennilega var
í iðrum jarðar, og inngangur þess jafnvel hér á Íslandi.“

Jón veltir því meðal annars fyrir
sér hvernig hafi verið að lifa við þessa heimsmynd. Hún er ólík því sem
menn eiga að venjast í hinum flókna hugarheimi nútímans og virðist fela
í sér meira ófrelsi. Að sumu leyti var þetta þó einfaldur hugarheimur með
skýrum reglum og markmiðum og hefur því ef til vill líka gefið tilfinningu
um öryggi. Jón leggur þó áherslu á að hann er einungis að tala um hugarheim
þessa tíma, ekki hin raunverulegu lífsskilyrði eða raunheiminn.

Á sýningunni Á efsta degi í Bogasal
Þjóðminjasafnsins má sjá fjalir með fögrum myndskurði sem varðveist hafa
í brotum en eru taldar vera úr mikilli dómsdagsmynd sem gæti hafa skreytt
Hóladómkirkju á 12. öld. Tilraun er gerð til endurgera dómsdagsmyndina
samkvæmt tilgátu Harðar Ágústssonar.

Þetta er fimmta sérfræðileiðsögnin
í vetur í röðinni Ausið
úr viskubrunnum í Þjóðminjasafni
Íslands. Sérfræðingar innan safns og utan ganga þá með gestum um safnið,
segja frá sýningum og miðla af sérþekkingu sinni. Leiðsagnirnar eru fyrir
alla.

Fólk er hvatt til að fjölmenna á
Þjóðminjasafnið í hádeginu 27. nóvember og hlusta á hið áhugaverða erindi
Jóns Björnssonar sálfræðings.

Bestu kveðjur / Best regards

Rúna K. Tetzschner

kynningarstjóri / Public Relation Manager

Þjóðminjasafn Íslands / National
Museum of Iceland

Suðurgötu 41 - 101 Reykjavík

fars. 824-2039, s. 530-2222 eða
5302248

netf. runa@thjodminjasafn.is

veff. http://www.thjodminjasafn.is