Hátíðardagskrá í Þjóðminjasafni
Íslands

í tilefni af 70
ára afmæli Þórs Magnússonar

sunnudaginn 18. nóvember kl. 15-17

Þór Magnússon verður sjötugur þann
18. nóvember næstkomandi og verður afmælisdagskrá til heiðurs honum í fyrirlestrarsal
Þjóðminjasafnsins klukkan 15-17 á afmælisdaginn. Þór gegndi starfi þjóðminjavarðar
á árunum 1968-2000.

Dagskráin hefst með ávarpi Margrétar
Hallgrímsdóttur þjóðminjavarðar. Síðan flytur Ole Villumsen Krog silfursérfræðingur
fyrirlestur um silfurskráningu og rannsóknir á íslensku og dönsku silfri
sem fram fóru á vegum safnsins á árunum 1978-1980. Fyrirlesturinn verður
gefinn út í ritröðinni Fyrirlestrar
Minningarsjóðs Ásu Guðmundsdóttur Wright..

Eftir kaffihlé flytur Þór Magnússon
sjálfur stuttan fyrirlestur og undirrituð verður yfirlýsing Þjóðminjasafnsins
og Þórs um útgáfu bókar um íslenskt silfur og rannsóknir hans á því efni.

Þjóðminjasafnið mun á næstunni jafnframt
gefa út bók með völdum greinum eftir Þór sem ber heitið Á minjaslóð.
Safn ritgerða og ljósmynda gefið út í tilefni sjötugsafmælis höfundar 18.
nóvember 2007. Greinarnar spanna efni sem tengist silfur- og gullsmíði,
fornleifum, byggingarsögu, útskurði, þjóðháttum, bókbandi, minningarmörkum
og sagnaþáttum. Sýnishorn úr merku ljósmyndasafni Þórs, sem varðveitt er
í Þjóðminjasafni Íslands, verður einnig birt. Auk þess verður heildarritaskrá
Þórs Magnússonar í bókinni, skrif á tímabilinu 1959-2007.

Bestu kveðjur / Best regards

Rúna K. Tetzschner

kynningarstjóri / Public Relation Manager

Þjóðminjasafn Íslands / National
Museum of Iceland

Suðurgötu 41 - 101 Reykjavík

fars. 824-2039, s. 530-2222 eða
5302248

netf. runa@thjodminjasafn.is

veff. http://www.thjodminjasafn.is