Völuspá í Bjarnastaðahlíð

Um býsanskar dómsdagsmyndir
og áhrif þeirra

Sunnudaginn 4. nóvember klukkan
15 verður Pétur
Pétursson prófessor í
guðfræði með áhugaverða leiðsögn um sýninguna Á
efsta degi í Bogasal
Þjóðminjasafns Íslands. Til sýnis eru fagurlega útskornar fjalir sem taldar
eru úr fornri býsanskri dómsdagsmynd Hóladómkirkju. Tilraun er gerð til
að endurgera þessa stórkostlegu mynd í fullri stærð (sa. 3x9 m).

Pétur Pétursson nálgast útskurðarmyndirnar frá nýstárlegu
sjónarhorni. Hann veltir fyrir sér hvort kristnar dómsdagsmyndir hafi hugsanlega
haft áhrif á Völuspá og bendir á vísur og vísuparta úr kvæðinu sem hafa
þótt torskilin en öðlast merkingu ef skoðað er í samhengi við dómsdagsmyndir
eins og þá sem sjá má á sýningunni. Sé gert ráð fyrir að slíkar myndir
hafi verið þekktar í umhverfi kvæðisins á sköpunartíma þess má túlka þessar
vísur með hliðsjón af því.

Gert er ráð fyrir að kristnitakan hafi verið langt og
flókið ferli sem hófst við upphaf landnáms og stóð fram á 11. öld. Á þeim
tíma renna kristnar og heiðnar hugmyndir víða saman. Þetta virðist meðal
annars mega sjá í Völuspá en gera má ráð fyrir að hið forna kvæði hafi
verið í stöðugri endursköpun þangað til það var fest á bókfell á 12. öld,
um svipað leyti og dómsdagsmyndinni var komið fyrir í Hóladómkirkju.

Eins og Pétur bendir á hafa sambærilegar dómsdagsmyndir
verið í umferð í Evrópu frá því á 9. öld. Þær hafa auk þess borist víða
á íkonum, í útskurði og handritum. Í öllum þessum myndum er meginþemað
hinn býsanski eða austræni dómsdagur sem austurkirkjan skilgreindi út frá
kenningum biblíunnar um þúsundáraríkið og endurkomu Krists á dómsdegi.
Kirkjuyfirvöld vígðu þessar myndir til notkunar í trúboði og helgihaldi.
Ýmsar útgáfur þeirra má finna í rómverskri og keltneskri kristni og þær
urðu mönnum mikið umhugsunarefni þegar aldamótin 1000 nálguðust og menn
bjuggu sig undir nýja sköpun og endurkomu öflugs konungs af himni sem öllu
ræður.

Pétur Pétursson er prófessor í guðfræði við Háskóla Íslands
og verður vafalaust gaman að hlusta á hann ausa úr brunnum þekkingar sinnar
á sunnudaginn kemur. Nú gefst gott tækifæri til að skoða sýninguna Á efsta
degi og fá jafnframt lifandi og skemmtilega leiðsögn.

Bestu kveðjur / Best regards

Rúna K. Tetzschner

kynningarstjóri / Public Relation Manager

Þjóðminjasafn Íslands / National
Museum of Iceland

Suðurgötu 41 - 101 Reykjavík

fars. 824-2039, s. 530-2222 eða
5302248

netf. runa@thjodminjasafn.is

veff. http://www.thjodminjasafn.is