Leiðsögn um Leiðina á milli - brot fortíðar
í listskynjun þriggja listakvenna nútímans

Nú eru síðustu forvöð að fá leiðsögn
um sýninguna Leiðina á milli í Bogasal Þjóðminjasafnsins. Sunnudaginn 2.
september klukkan 15 verða listakonurnar þrjár sem verk eiga á sýningunni
allar á staðnum og segja gestum frá listsköpun sinni.

Listakonurnar eru þær Guðbjörg
Lind Jónsdóttir, Guðrún Kristjánsdóttir og Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá
sem kenna sig við Andrá. Gaman er að hlusta á þær útskýra og túlka eigin
sýningu og ættu gestir ekki að láta þetta tækifæri fram hjá sér fara.

Sýningin Leiðin á milli hefur hlotið
góða dóma. Listakonurnar vinna þar með þjóðararfinn og sækja innblástur
í muni úr Þjóðminjasafninu. Áður en sýningin var opnuð hélt Andrárhópurinn
meðal annars í könnunarleiðangur um geymslur safnsins og naut leiðsagnar
sérfræðinga.

Á sýningunni eru þrjár innsetningar
listakvennanna, Hringhenda , Aðdráttarafl og Gestrisni. Ný verk eru sett
í samhengi við gömul og þjóðminjar þannig sýndar í nýju ljósi. Leiðin liggur
milli staða, milli einstaklinga, milli fortíðar og líðandi stundar, listtjáningar
fyrr og nú, menningararfsins sem geymdur er í Þjóðminjasafninu og listrænnar
endursköpunar hans. Oddný Eir Ævarsdóttir sýningarstjóri segir: ,,Einkennandi
fyrir allar þessar leiðir er ákveðin togstreita og úr henni má lesa þrá
eftir hreyfingu. Stundum í hring, örlítið skakkan, þráhyggjulega endurtekinn
eða leikandi hraðan út fyrir túngarða og mörk tímans.”

Myndlistarkonurnar þrjár tjá hugmyndina
um leiðina hver á sinn hátt en leiðir þeirra í tjáningunni fléttast líka
saman. Sýninguna má skoða sem stefnumót þeirra við listamenn fyrri alda,
skáldin og ferðalangana Látra-Björgu, Bólu-Hjálmar Jónsson og Jónas Hallgrímsson.
Á ferðalögum sínum komu þau þrjú víða við sem gestir og þökkuðu fyrir sig
með orðum, ljóðum, listaverkum og uppfinningum. Þeim er einnig boðið á
sýninguna í Bogasalnum þar sem myndlistarkonurnar þrjár eru gestgjafar.

Guðrún, Kristín og Guðbjörg Lind gera
ekki fræðilega úttekt á listamönnum fortíðarinnar heldur nálgast þá gegnum
sköpun, bæði þeirra sköpun og sína eigin, og einnig gegnum persónulega
muni. Guðrúnu opnaðist sýn inn í kveðskaparheim Bólu-Hjálmars gegnum fagurlega
útskorinn skáp hans sem nú er í eigu Þjóðminjasafnsins og Kristín náði
sambandi við Jónas Hallgrímsson með því að draga rauða skrifborðið hans
fram úr safngeymslu. Kaffibollar mynda tengingu Guðbjargar Lindar við förukonuna
Látra-Björgu sem yfirgaf eldhússtörfin.

Myndlistarkonurnar þrjár sjá fyrir
sér leiðir þessara þriggja listamanna fyrri alda, leiðir sem liggja að
krossgötum á sýningunni í Bogasalnum. Eftir þessum leiðum koma ferðalangarnir.

Mikilvægt er að menningarminjum eins
og þeim sem geymdar eru í Þjóðminjasafni Íslands sé miðlað til umheimsins
og það má gera á marga vegu. Ein miðlunarleiðin felst í listrænni endursköpun
eins og þeirri sem sjá má hjá Andrárhópnum. Í meðförum myndlistarkvennanna
er menningararfurinn settur í annað samhengi en áður og gegnum það fær
hann nýtt og óvænt líf. Sýningin í Bogasalnum er óður til þeirrar brotakenndu
arfleifðar sem varðveist hefur í Þjóðminjasafninu og öðrum söfnum. Kristín,
Guðrún og Guðbjörg Lind raða brotum fortíðarinnar saman gegnum listræna
skynjun og listsköpun.

Sýningin Leiðin á milli í Bogasalnum
stendur til 30. september.

Bestu kveðjur / Best regards

Rúna K. Tetzschner

kynningarstjóri / Public Relation Manager

Þjóðminjasafn Íslands / National
Museum of Iceland

Suðurgötu 41 - 101 Reykjavík

fars. 824-2039, s. 530-2222 eða
5302248

netf. runa@thjodminjasafn.is

veff. http://www.thjodminjasafn.is