Þjóðfræði og þakkarskuld á áttræðisþingi
- fræðaöldungurinn Jón Hnefill Aðalsteinsson á stórafmæli!

Fjörlegt afmælisþing
verður haldið til heiðurs Jóni Hnefli Aðalsteinssyni áttræðum í fyrirlestrarsal
Þjóðminjasafnsins föstudaginn 30. mars klukkan 13-18. Lærisveinar og -meyjar
hans flytja margbreytilega fyrirlestra í framhaldi og tilefni af merkisafmælinu
en Jón Hnefill er fæddur 29. mars árið 1927.

Um leið og málþinginu er ætlað að
heiðra Jón Hnefil og hans mikla frumkvöðlastarf í þágu þjóðfræðinnar
á Íslandi gefa fyrirlestrarnir hugmynd um þá fjölbreytni og grósku sem
ríkir í þjóðfræðirannsóknum við upphaf 21. aldar - grósku sem sprottin
er af fræjum sem gamli lærimeistarinn sáði.

Til áttræðisþingsins efna nemendur
Jóns Hnefils Aðalsteinssonar frá ýmsum tímum með fulltingi Félagsvísindadeildar
Háskóla Íslands, Þjóðminjasafns Íslands
og Félags
Þjóðfræðinga á Íslandi.

Jón Hnefill Aðalsteinsson er löngu
orðinn þjóðkunnur fyrir margvísleg störf sín. Auk brautryðjendastarfs í
þjóðfræðikennslu hafa fáir lagt jafn mikið af mörkum til þjóðfræðirannsókna
hér á landi og hann. Jón Hnefill hefur ritað fjölda bóka og eftir hann
hafa birst margar ritgerðir í íslenskum og erlendum tímaritum. Áhugaefni
hans eru gjarnan af trúarlegum toga: kristnitakan, norræn trú og goðsögur,
þjóðtrú síðustu alda um álfa, tröll, afturgöngur og galdrameistara, en
þó einnig ævintýri, spádómar, gátur og tækifæriskveðskapur og þá er fátt
eitt nefnt.

Dagskrá afmælisþingsins:

Dagskrá málþingsins til heiðurs Jóni
Hnefli er líka fjölbreytt: Valdimar Tr. Hafstein setur þingið og fer með
inngangsorð til heiðurs afmælisbarninu. Katla Kjartansdóttir flytur fyrirlesturinn "Fávíst
barn fetar fræðimanns braut" og minnist þess hvernig Jóni
Hnefli tókst að vekja áhuga hennar fyrir hinu þjóðfræðilega í tilverunni.
Kristinn Schram segir "Ágætt að hafa svolítinn húmor" og
rekur þræði í fari og fræðum Jóns saman við þær þjóðfræðilegu áherslur
sem hann temur sér sjálfur í dag.

Fyrirlesararnir hyggja að fortíðinni
og fjallar fyrirlestur Jóns Jónssonar, "Á mörkum mennskunnar",
um sögur af flökkurum. Síðan rekur Marteinn Helgi Sigurðsson skipti
á nöfnum í goðakenningum eins og Sig-Týr, hanga-Týr og farma-Týr,
og Rósa Þorsteinsdóttir segir frá söfnun og hljóðritunum alþýðufræða,
sagna og kveðskapar sem fram fóru á 20. öld á vegum Stofnunar Árna
Magnússonar.

En framtíðina skal líka byggja og Rakel
Pálsdóttir fjallar um jafn nútímalegt efni og keðjubréf á netinu, rekur
sameiginleg einkenni þeirra og veltir fyrir sér hvað liggur baki. Kynnt
verður rannsókn Gunnellu Þorgeirsdóttur: "Ein mynd er á við þúsund
orð: "Fótósjoppaðar" ljósmyndir sem flökkusagnir". Loks
spyr Kristín Einarsdóttir sígildrar áramótaspurningar: "Hvernig
fannst þér skaupið?" Hún ræðir um grínefni í íslenskum fjölmiðlum
með áherslu á Áramótaskaup sjónvarpsins og er fyrirlestur hennar sá síðasti
á dagskrá afmælisþingsins.

Óhætt er að fullyrða að líflegt verður
á málþingi þjóðfræðinga til heiðurs Jóni Hnefli Aðalsteinssyni áttræðum
og í lok dags verður skálað í léttum veitingum í Myndasal Þjóðminjasafnsins.

Fjölbreyttur starfsferill Jóns
Hnefils Aðalsteinssonar:

Afmælisbarnið sjálft þarf vart að
kynna en svolítil upprifjun er við hæfi í tilefni merkisdagsins. Jón Hnefill
er fæddur á Vaðbrekku í Hrafnkelsdal 29. mars 1927. Hann varð stúdent frá
Menntaskólanum á Akureyri 1948, fil.cand. í trúarbragðasögu, trúarsálarfræði
og heimspeki frá Stokkhólmháskóla 1958, cand.theol. frá Háskóla Íslands
1960, fil.lic. í þjóðfræði frá Uppsalaháskóla 1966 og lauk síðan doktorsprófi
í grein sinni frá sama skóla árið 1979.

Starfsferill Jóns Hnefils er óvenju
fjölbreyttur. Hann gegndi embætti sóknarprests í Eskifjarðarprestakalli
á árabilinu 1960 til 1966, kenndi jafnframt við unglingaskólann á Eskifirði
1961 til 1964 og var skólastjóri Iðnskólans þar veturinn 1963 til 1964.
Um árabil var hann blaðamaður á Morgunblaðinu en hóf svo kennslu við Háskóla
Íslands árið 1967, fyrsta árið sem stundakennari í guðfræðideild og síðan
í heimspekideild í tvo áratugi. Árin 1983 til 1984 var hann Honorary
Research Fellow við University College í London. Jón Hnefil varð
fyrstur manna dósent í þjóðfræði við félagsvísindadeild Háskóla Íslands
árið 1988 og prófessor 1992. Hann lagði grunninn að og mótaði kennslu í
þessari fræðigrein hér á landi. Árið 1992 var hann jafnframt gerður að
félaga í The Folklore Fellows, an International Network of Folklorist,
sem stofnað var af the Finnish Academy of Science and Letters. Hann var
svo kjörinn heiðursfélagi í Félagi þjóðfræðinga á Íslandi árið 1998.

Jafnhliða háskólakennslu kenndi Jón
Hnefill við Menntaskólann við Hamrahlíð tímabilið 1969 til 1988 og hefur
auk þess kennt við Gagnfræðaskólann við Lindargötu, Tækniskólann, Leiklistarskólann
og Þroskaþjálfaskólann. Hann hefur alla tíð látið til sín taka í félagsmálum
á starfssviði sínu, var formaður Þjóðfræðafélagsins, Sagnfræðingafélagsins,
Félags menntaskólakennara  og Hins íslenska kennarafélags. Einnig
var hann um skeið í stjórn Nordiska Lärarrådet.

Lengi mætti áfram að telja afrek afmælisbarnsins á
fjölbreyttri starfsævi. Umfram allt er Jón Hnefill Aðalssteinsson þó góður
maður.

Bestu kveðjur / Best regards

Rúna K. Tetzschner

kynningarstjóri / Public Relation Manager

Þjóðminjasafn Íslands / National
Museum of Iceland

Suðurgötu 41 - 101 Reykjavík

fars. 824-2039, s. 530-2222 eða
5302248

netf. runa@thjodminjasafn.is

veff. http://www.thjodminjasafn.is