Sérðu það sem ég sé? Ljósmyndir
á grunnsýningu Þjóðminjasafnsins.

Sérfræðileiðsögn Ingu Láru Baldvinsdóttur
og aðgengi fyrir alla þriðjudaginn 28. nóvember klukkan 12:10

Táknmálstúlkur verður
með leiðsögninni

Þriðjudaginn 28.
nóvember klukkan 12:10 verður fimmta
sérfræðileiðsögnin sem Þjóðminjasafnið stendur fyrir í vetur. Þá mun Inga
Lára Baldvinsdóttir ,,ausa úr viskubrunnum” og kynna myndabrunna safnsins.
Inga Lára er fagstjóri Myndasafns Þjóðminjasafnsins og mörgum að góðu kunn.
Jafnan berast fréttar af nýjum skemmtilegum ljósmyndasýningum í Þjóðminjasafninu
en Inga Lára er sýningarhöfundur þeirra margra. Á þriðjudaginn kemur mun
hún svo beina athyglinni að ljósmyndum á sjálfri grunnsýningunni en hún
er einnig höfundur myndasýninga þar.

,,Tuttugasta öldin,” segir
Inga Lára, ,,er öld ljósmyndarinnar. Enginn annar miðill nær að fanga hugblæ
tímans og samfélagsbreytingarnar með sama hætti og ljósmyndin og sambærilegt
myndmagn er ekki til frá neinni annarri öld.”

20. öldin er ekki einungis sýnd með
munum á grunnsýningu Þjóðminjasafnsins heldur einnig með um þúsund ljósmyndum.
Fjórar ólíkar ljósmyndasýningar eru á sérstökum skjáum við 20. aldar færibandið
við endavegg grunnsýningarinnar á 3. hæð. Saga 20. aldarinnar er sögð á
ljóslifandi hátt í Aldarspeglinum,
- aðalmyndasýningunni. Þar er varpað upp myndum af landi og þjóð ár frá
ári gegnum alla öldina og fæst þannig yfirgripsmikil sýn. Auk Aldarspegilsins
eru þrjár skjámyndasýningar um afmarkaðri efni: mannmyndir, fólk og ferðalög
og bernskuna.

Skjámyndasýningarnar hafa heppnast afar
vel en ýmis vandkvæði geta þó verið fólgin í því að segja sögu með myndum.
Það verður forvitnilegt að hlusta á Ingu Láru Baldvinsdóttur sjálfa segja
frá sýningargerðinni og ræða um val á sýningarefnum og myndum.

Þjóðminjasafn Íslands
leggur áherslu á aðgengi fyrir alla. Táknmálstúlkar fylgja nú sérfræðileiðsögnunum
og er fólk hvatt til að nýta sér það.

Bestu kveðjur / Best regards

Rúna K. Tetzschner

kynningarstjóri / Public Relation Manager

Þjóðminjasafn Íslands / National
Museum of Iceland

Suðurgötu 41 - 101 Reykjavík

fars. 824-2039, s. 530-2222 eða
5302248

netf. runa@thjodminjasafn.is

veff. http://www.thjodminjasafn.is