Fréttatilkynning frá Menningarmiðstöðinni
Gerðubergi

Guðrún Bergsdóttir

Hugarheimar

10. nóvember - 21. janúar 2007

Guðrún Bergsdóttir opnar sýningu
á útsaumsverkum og tússteikningum í Boganum,

Gerðubergi, föstudaginn 10. nóvember
kl. 16.

Rauður ferningur tekur við af gulum,
síðan grænn; litirnir þjappa sig saman og mynda formfasta tröð litaflata
eins og þeir sæki traust sitt til hvers annars. Næsta mynd getur ekki orðið
eins. Græni ferningurinn fær nú gulan kjarna og innan hans er enn einn
litaflöturinn, eins og horft sé inn um glugga eða dyragátt; reglan og formfestan
eru enn í skorðum. Og næsta mynd getur heldur ekki orðið eins, enn minnka
formin, ferningarnir eru hér enn en við bætast skálínur og tíglar sem ramma
inn skrautlega litafleti og allt verður ein allsherjar sinfónía fjölskrúðugra
lita og forma; eins og íslensk brekka þakin berjum að hausti eða brúðarklæði
frá Austurlöndum. Og enn smækka formin og litafletirnir þar til aðeins
einn litur er í hverjum krossi og formfestan horfin, litirnir dansa og
iða fullir af kátínu og frelsiskennd og vitna um hina óheftu tjáningu sem
sprettur fram úr hugarheimi Guðrúnar Bergsdóttur.

Guðrún Bergsdóttir er fædd 27. júlí
1970. Fyrstu skólaárin var hún í Lækjarskóla og Víðistaðaskóla í Hafnarfirði
en stundaði síðan nám við Öskjuhlíðarskóla í 7 ár. Hún hefur sótt fjölmörg
námskeið hjá Fullorðinsfræðslu fatlaðra, nú Fjölmennt, m.a. í textílsaumi
og vélsaumi. Krosssaumsmyndirnar sem hún gerir eru ólíkar því sem hún gerði
í skólanum; þar saumaði hún út áteiknað mynstur en núna kemur innblásturinn
algerlega úr hennar eigin hugarheimi og myndefnið er spunnið upp jöfnum
höndum. Það var árið 2000 sem Guðrún hóf sjálfstætt að feta með nál og
þræði beinar brautir útsaumsstrammans, en fylgdi svolítið varkár í fyrstu
reglufestu hins ofna grunns en þó með sínu eigin lagi. Athyglisvert er
að sjá þá þróun sem hefur átt sér stað á þeim sex árum síðan hún byrjaði
á þessari tómstundaiðju sinni. Í dag fremur hún algerlega frjálsan spunadans;
einu mörkin eru stærð strammans því hugarheimur Guðrúnar spannar óravíddir.

Áður en Guðrún tók til við að sauma
út hafði hún málað tússmyndir sem bera sömu einkenni; sterkir litir og
smá samfléttuð form með fullkomna og sjálfsprottna myndbyggingu, sem skólagengnir
myndlistarmenn mættu öfunda hana af.

Guðrún hefur síðastliðinn áratug unnið
í Ási vinnustofu, sem er verndaður vinnustaður á vegum Styrktarfélags vangefinna,
og síðustu sumur einnig í gróðurhúsinu í Bjarkarási hluta úr degi. Hún
unir vel hag sínum á báðum stöðum, enda eru þar frábærir leiðbeinendur
sem tekst að gera vinnuumhverfið öruggt og hvetjandi. Guðrún býr enn í
foreldrahúsum; foreldrar hennar eru Sigríður Skaftfell og Bergur Þorleifsson.

Sýningarstjóri: Harpa Björnsdóttir

Guðrún Dís Jónatansdóttir

Verkefnastjóri / Project Manager

Menningarmiðstöðin Gerðuberg

Gerðubergi 3-5, 111 Reykjavík

Beinn sími / Direct tel.: +354 575 7706, +354 899 1969

gudrun.dis.jonatansdottir@reykjavik.is

www.gerduberg.is

Reglur um trúnað í tölvupóstsamskiptum: http://www.reykjavik.is/trunadur

Reglur um trúnað í tölvupóstsamskiptum: http://www.reykjavik.is/trunadur