Fréttatilkynning:

Fræðimaðurinn Jón Ólafsson. Málþing á degi íslenskrar tungu,
16. nóvember 2005

Á undanförnum mánuðum hefur þess verið minnst að liðin eru 300 ár frá fæðingu
fornfræðingsins Jóns Ólafssonar, sem kenndi sig við Grunnavík. Hann ólst
upp í Víðidalstungu, fór til Kaupmannahafnar 1726, varð þá skrifari Árna
Magnússonar handritasafnara og skráði allt safn hans að honum látnum 1730.
Jón starfaði síðan að íslenskum fræðum við Árnasafn í Kaupmannahöfn til
æviloka 1779. Hann uppskrifaði aragrúa rita, samdi mikla íslensk-latneska
orðabók, íslenskt rithöfundatal, ævisögu Árna Magnússonar og fjölda annarra
fróðleiksverka sem oft og víða er vitnað til.

Jóni til heiðurs var opnuð sýning á Þjóðminjasafni
Íslands 16. ágúst sem ber heitið "Eldur í Kaupinhafn - 300 ára minning
Jóns Ólafssonar úr Grunnavík." Jafnframt var þá kynnt útgáfa á merku
riti Jóns, "Relatio af Kaupinhafnarbrunanum 1728". Sýningin stendur
til 1. desember.

Á menningarnótt, 20. ágúst, var sérstök dagskrá
í Þjóðminjasafni helguð Jóni og nú á degi íslenskrar tungu, miðvikudaginn
16. nóvember, verður enn dagskrá í hans nafni, "Fræðimaðurinn Jón
Ólafsson".

Málþingið fer fram í Þjóðminjasafni Íslands.
Þar flytur Guðrún Kvaran, forstöðumaður Orðabókar Háskólans, erindi um
málfræðistörf Jón Ólafssonar; lesið verður upp úr nokkrum verkum hans;
og loks flytur Svavar Sigmundsson, forstöðumaður Örnefnastofnunar, erindi
um málrækt í ritum Jóns Ólafssonar.

Málþingið hefst kl. 12.15 og stendur í u.þ.b.
klukkustund. Að því standa Góðvinir Grunnavíkur-Jóns í samvinnu við Þjóðminjasafn
Íslands.

Allir eru velkomnir og aðgangur ókeypis.

Kær kveðja,

Gísli Sverrir Árnason kynningarstjóri/Public Relations Manager

Þjóðminjasafni Íslands/National Museum of Iceland

Suðurgötu 41, 101 Reykjavík

Sími/Tel.: 530 2200 og/and 530 2209. GSM: 824 2039

gisli.sverrir@thjodminjasafn.is

www.thjodminjasafn.is/www.nationalmuseum.is