Í jöklanna skjóli:

heimildakvikmynd um horfna lifnaðarhætti
í Skaftafellssýslum.

Sýnd í Þjóðminjasafni Íslands

Þjóðminjasafn Íslands og Kvikmyndasjóður
Skaftfellinga hafa tekið höndum saman um að sýna heimildakvikmyndina Í
jöklanna skjóli sem Vigfús Sigurgeirsson ljósmyndari tók á árunum 1952-1954
í Skaftafellssýslum. Skýringartexta samdi Jón Aðalsteinn Jónsson og er
hann jafnframt flytjandi textans. Kvikmyndin er í all mörgum þáttum og
eru tveir til þrír þættir sýndir hverju sinni.

Kvikmyndin er sýnd í fyrirlestrasal
Þjóðminjasafns Íslands við Suðurgötu fyrsta fimmtudag hvers mánaðar kl.
17:00. Fimmtudaginn 3. nóvember kl. 17:00 verða þessir þættir á dagskrá:

§ Samgöngur:
flutningar á sjó

§ Samgöngur:
flutningar á landi og í lofti

Síðasti hluti kvikmyndarinnar verður
sýndur 1. desember. Þá verða þessir þættir á dagskrá:

§ Kolagerð

§ Meltekja

§ Úr
Mýrdal í Lón

Að lokinni kvikmyndasýningu hverju
sinni verður safnið opið gestum til kl. 21:00 og ennfremur Kaffistofa og
Safnbúð. Sérfræðingur Þjóðminjasafnsins mun leiða gesti um þá hluta grunnsýningar
safnsins sem tengist efni kvikmyndarinnar hverju sinni.

Kær kveðja,

Gísli Sverrir Árnason kynningarstjóri/Public Relations Manager

Þjóðminjasafni Íslands/National Museum of Iceland

Suðurgötu 41, 101 Reykjavík

Sími/Tel.: 530 2200 og/and 530 2209. GSM: 824 2039

gisli.sverrir@thjodminjasafn.is

www.thjodminjasafn.is/www.nationalmuseum.is