LISTASAFN REYKJAVÍKUR – HAFNARHÚS

Laugardagur 12. mars kl. 16.00

Nían – Myndasögumessa

Myndheimur – Brynhildur Þorgeirsdóttir

Nían - Myndasögumessa

Myndasögur
úr ýmsum áttum munu fylla fimm sýningarsali á annarri hæð Hafnarhússins
á sýningunni Nían - Myndasögumessa, sem er önnur tveggja sýninga
sem þar verður opnuð laugardaginn 12. mars kl. 16.00. Yfirskrift sýningarinnar,
Nían, er bein tilvísun í níunda listformið sem kennt hefur verið
við myndasögur. Forsprakki sýningarinnar er Gisp!-hópurinn en um þessar
mundir eru um þrettán ár síðan hópurinn tók sig saman og hélt stóra sýningu
á Kjarvalsstöðum þar sem sýnd voru verk íslenskra og franskra myndasöguhöfunda.
Upp frá því hafa sprottið upp nýir, íslenskir myndasöguhöfundar, og staða
myndasögunnar breyst umtalsvert. Það má meðal annars þakka aukinni útbreiðslu
myndasagna bæði á bókasöfnum og sérstökum afþreyingar- og bókaverslunum
á borð við Nexus. Þá hafa fjölmiðlar sýnt listgreininni aukinn áhuga og
fjallað um hana á faglegum forsendum. Á sýningunni í Hafnarhúsinu skoðar
Gisp!-hópurinn nýja og breytta stöðu myndasögunnar á Íslandi og býður til
liðs við sig höfundum frá Bandaríkjunum, Kanada, Bretlandi og flestum Norðurlandanna
auk þess að varpa sérstöku ljósi á tengsl Erró við myndasöguna. Meðal listamanna
sem eiga myndasögur á sýningunni eru fulltrúar Optimal Press útgáfunnar
í Svíþjóð, fulltrúar kanadíska útgáfufyrirtækisins Drawn & Quarterly,
Bandaríkjamaðurinn Art Spiegelman, Bretinn Dave McKean og Íslendingarnir
Bjarni Hinriksson, Jóhann L. Torfason, Þorri Hringsson, Halldór Baldursson,
Ólafur J. Engilbertsson, Hallgrímur Helgason, Helgi Þorgils Friðjónsson,
Þorvaldur Þorsteinsson, Hugleikur Dagsson svo fáeinir séu nefndir. Stór
hópur hinna erlendu höfunda mun koma hingað til lands til að vera viðstaddur
opnun sýningarinnar. Sýningarstjóri er Bjarni Hinriksson. Sýningin stendur
til 24. apríl.

Í tilefni af sýningunni gefur Gisp!-hópurinn út viðamikla og vandaða sýningarskrá
sem inniheldur m.a. greinar um íslenskar og erlendar myndasögur, yfirlitsgrein
um myndasögur á Íslandi og íslensku myndasöguna eftir Ingu Maríu Brynjarsdóttur,
greinar um Dave McKean og Art Spiegelman eftir Úlfhildi Dagsdóttur, grein
um sögu Gisp! eftir Bjarna Hinriksson að ógleymdu viðtali við Erró sem
Bjarni tók fyrr á þessu ári.

Samstarfsaðilar Listasafns Reykjavíkur að
sýningunni eru Borgarbókasafn Reykjavíkur og Nexus en báðir þessir aðilar
munu gera myndasögunni hátt undir höfði á sýningartímabilinu með ýmis konar
viðburðum og uppákomum. Borgarbókasafnið mun auka stórlega úrval sitt á
myndasögum til útláns og einnig mun Reykjavíkurtorgið í Grófarhúsinu verða
vettvangur myndlistarsagna. Undir lok sýningartímabilsins er t.d. fyrirhugað
að hafa þar sýningu á teikningum ungra myndsöguteiknara sem tekið hafa
þátt í myndasögunámskeiðum og öðrum áhugasömum. Einnig er þar fyrirhuguð
dagskrá þar sem unga fólkið spjallar um myndir sínar og myndasöguáhuga.
Í Nexus verður einnig stórlega aukið úrval myndasagna og fjölbreytileiki
þeirra þar sem aldrei fyrr.

Sérstök athygli er vakin á því að á næstkomandi
sunnudag, 13. mars, kl. 15.00 mun sýningarstjórinn Bjarni Hinriksson
ásamt nokkrum hinna erlendu myndasöguhöfunda vera með leiðsögn um sýninguna.
Fyrr um daginn mun afþreyingar- og bókaverslunin Nexus svo skipuleggja
áritanir hinna erlendu gesta í höfuðstöðvum sínum að Hverfisgötu
103 og er dagskráin sem hér segir. Kl. 13 :00 Matti Hagelberg, Kati Kovács
og Katja Tukiainen, kl. 13:30 Pentti Otsamo, Anneli Furmark og David Collier,
kl. 14:00 David Liljemark, Henrik Lange og Åsa Grennvall og kl. 14:30 Julie
Doucet og Jason.

Listasafn Reykjavíkur mun í tilefni sýningarinnar
vera með sýningarstjóraspjall sunnudaginn 20. mars kl. 15.00 og
sérstaka leiðsögn með þátttöku nokkurra listamanna sem verk eiga á sýningunni
sunnudaginn 24. apríl. Þá munu Listasafn Reykjavíkur og Borgarbókasafnið
gangast sameiginlega fyrir málþingi og pallborðsumræðum um myndasöguna
og önnur listform 2. og 3. apríl undir yfirskriftinni Myndasaga
og bókmenntirnar / Myndasagan og myndlistin.

Sjá nánar: http://www.listasafnreykjavikur.is/Hafnarhus/syningar/nian.shtml

Myndheimur – Brynhildur Þorgeirsdóttir

Á
fyrstu hæð Hafnarhússins opnar Brynhildur Þorgeirsdóttir viðamikla einkasýningu,
en hún var síðast með stóra einkasýningu í Listasafni Reykjavíkur árið
1990 og þá á Kjarvalsstöðum. Brynhildur er þekkt fyrir notkun á steinsteypu,
gleri og málmi í verkum sínum sem ýmist rísa sem klettar eða fjöll úr umhverfi
sínu, eða birtast sem óvænt óargadýr, með hvassa brodda og spenntar kryppur.
Á sýningu Brynhildar í Hafnarhúsinu fá gestir að kynnast Myndheimi
listamannsins sem svo sannarlega rís undir nafni. Gríðarlegur fjallgarður
teygir sig upp í svartan himinn í sýningarsalnum á fyrstu hæðinni og í
portinu heldur sýningin áfram þar sem við taka torkennilegar myrkraverur
sem spretta upp úr hvítu gólfinu. Hér eru frumkraftar íslenskrar náttúru
að verki og einstök túlkun listakonunnar á þeim öflum sem móta okkur öll
með beinum og óbeinum hætti. Sýningin stendur til 24. apríl.

Brynhildur verður með listamannsspjall í fjölnotasal Hafnarhússins
sunnudaginn 10. apríl kl. 15.00

Sjá nánar: http://www.listasafnreykjavikur.is/Hafnarhus/syningar/myndheimur.shtml

Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús er opið
daglega frá kl. 10-17. Á mánudögum er frítt inn og einnig er ókeypis aðgangseyrir
fyrir börn yngri en átján ára alla daga. Aðgangseyrir í Hafnarhúsið gildir
samdægurs í Ásmundarsafn við Sigtún og á Kjarvalsstaði.

Kær kveðja,

Soffía Karlsdóttir

Kynningarstjóri / PR and Communications Manager

Listasafn Reykjavíkur / Reykjavík Art Museum

Box 110, IS - 121 Reykjavík

Tel. +354 590-1202 / +354 820-1202

Fax +354 590-1201

www.listasafnreykjavikur.is

Tölvupóstur þessi og viðhengi hans kunna að innihalda trúnaðarupplýsingar.
Ef þú ert ekki réttur viðtakandi, er þess óskað að þú gætir fyllsta trúnaðar
og leyndar, hvorki lesir, skráir, afritir né notfærir þér tölvupóstinn
né viðhengi hans á nokkurn hátt, eins og þér er skylt skv. 2. mgr. 44.
gr., sbr. 57. gr. laga nr. 107/1999 um fjarskipti. Jafnframt er farið fram
á að þú tilkynnir til sendanda um móttöku tölvupóstsins eins fljótt og
verða má, með því að endursenda tölvupóstinn eða með sjálfstæðum tölvupósti.
Loks er þess óskað að þú eyðir tölvupósti þessum, viðhengjum hans og afritum
ef um þau er að ræða.