<html>
<body>
<div align="center"><font size=4 color="#FF0000"><b>Menningarstefna,
menningararfur, menningarfræði<br>
</b></font><font size=4>16. til 17. janúar 2004 í Norræna
húsinu<br><br>
</font></div>
Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur ókeypis.<br><br>
<i>Föstudagur 16. janúar<br><br>
</i>kl 15:00-17:30<br>
Ávarp menntamálaráðherra, <b>Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur<br>
Tony Bennett</b>, The historical universal: Cultural capital and cultural
policy<br>
<b>Barbro Klein</b>, Reflections on nationbuilding, heritage politics,
and ethnic diversity<br><br>
<br>
<i>Laugardagur 17. janúar<br><br>
</i>kl 11:00-13:15<br>
<b>Jón Ólafsson</b>, Togstreitan í menningunni<br>
<b>Hallfríður Þórarinsdóttir</b>, Málpólitík -- menningarpólitík: Hver
ræður, hvað ræður, hvers vegna?<br>
<b>Svanhildur Konráðsdóttir</b>, „How do you like Iceland?“ Menningarleg
ímyndarsköpun og vörumerkið Reykjavík<br>
<b>Úlfhildur Dagsdóttir</b>, Að lesa (í) myndir? Myndlæsi og
myndlestur<br><br>
kl. 13:15-14:30 Hádegishlé<br><br>
kl. 14:30-16:15<br>
<b>Guðný Gerður Gunnarsdóttir</b>, Menningararfur á safni<br>
<b>Birgir Hermannsson</b>, Hvað eru Þingvellir? Um menningarlegan
grundvöll íslenska þjóðríkisins<br>
<b>Sveinn Einarsson</b>, UNESCO og menningarleg fjölbreytni<br><br>
kl 16:30-17:30 <br>
Pallborðsumræður með öllum fyrirlesurum<br><br>
<br>
<b>Tony Bennett </b>er prófessor í félagsfræði við Open University í
Bretlandi og einn þekktasti talsmaður menningarfræðinnar á alþjóðavísu.
Bennett hefur um langt skeið rannsakað menningarstefnu og ritað margt um
það efni. Eftir hann liggja t.a.m. bækurnar <i>Culture: A Reformer´s
Science </i>og <i>The Birth of the Museum: History, Theory, Politics</i>.
Á næsta ári kemur út bók eftir Bennett um þróunarsöfn á 19. öld og
samband þeirra við frjálslyndisstefnu í breskum stjórnmálum, en auk þess
er hann með í smíðum rit um sögu menningarstefnu á Vesturlöndum frá
Upplýsingu til fjölmenningar. <br><br>
<b>Barbro Klein </b>er forseti sænsku félagsvísindaakademíunnar (SCASSS)
og fyrrverandi prófessor í þjóðfræði við háskólann í Stokkhólmi,
Kaliforníuháskóla í Berkeley, Pennsylvaníuháskóla í Fíladelfíu og við New
School í New York. Hún hefur margt ritað um menningararf og er einhver
helsti sérfræðingur á Norðurlöndum á því sviði. Eftir hana liggja t.d.
bækurnar <i>Gatan är vår! Ritualer på offentliga platser</i>, <i>Swedish
Folk Art: All Tradition is Change </i>og <i>To Make the World Safe for
Diversity: Towards an Understanding of Multi-Cultural Societies</i>.
<br><br>
Auk hinna erlendu gesta munu innlendir fræðimenn ræða menningarstefnu og
menningararf frá ólíkum hliðum.<br><br>
Athugið að áður en ráðstefnan hefst halda Tony Bennett og Barbro Klein
sitt hvora málstofuna. Þær málstofur eru eingöngu ætlaðar þeim sem skrá
sig fyrirfram og greiða skráningargjöld, en þegar er fullbókað á
þær.<br><br>
Ráðstefnan er haldin á vegum ReykjavíkurAkademíunnar í samstarfi við
menntamálaráðuneytið, Menningarmálanefnd Reykjavíkurborgar, Lesbók
Morgunblaðsins, Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála og
Hugvísindastofnun Háskóla Íslands og með stuðningi bresku og sænsku
sendiráðanna í Reykjavík. Hún er liður í röð þverfaglegra
rannsóknarstefna sem ber yfirskriftina H21 - Hugmyndir á 21. öld, sem
ReykjavíkurAkademían hyggst framvegis standa að á hálfs árs fresti.
</body>
</html>