[Gandur] Aðalfundarboð FÞÍ

Félag þjóðfræðinga á Íslandi felagthjodfraedinga at gmail.com
Wed Apr 24 14:15:05 GMT 2024


Aðalfundur Félags þjóðfræðinga á Íslandi verður haldinn 8. maí næstkomandi
kl. 17 á neðri hæð Café Rósenberg.

Dagskrá fundar:
- Skýrsla stjórnar um liðið starfsár.
- Greint verður frá ákvörðun stjórnar um FÞÍ sem fagfélag.
- Reikningar félagsins lagið fram til samþykktar.
- Ákvörðun um upphæð árgjalds komandi starfsárs.

Likt og lög félagsins gera ráð fyrir er komið að því að kjósa í
eftirfarandi embætti stjórnar:

*Formanns* og annan tveggja *meðstjórnanda *sem og kosningu tveggja
*varamanna*. Eins verða tveir skoðendur reikninga félagsins kosnir.

*Framboð til embætta má senda á netfangið felagthjodfraedinga at gmail.com
<felagthjodfraedinga at gmail.com>*

Einnig mega aðalfundar gestir bjóða sig fram á fundinum sjálfum.
Allir félagsmenn FÞÍ eru gjaldgengir.

Orðið gefið laust til skrafs og ráðagerðar. FÞÍ býður í drykki á barnum.


More information about the Gandur mailing list