[Gandur] Tækni tröll FÞÍ

Félag þjóðfræðinga á Íslandi felagthjodfraedinga at gmail.com
Fri Jan 13 14:41:53 GMT 2023


Tækni-trölla kvöld
Kæru þjóðfræðingar og þjóðfræðinemar
Félag Þjóðfræðinga á Íslandi ætlar að kalla saman tækni-tröll þjóðfræðinnar
til jafningjafræðslu og spjalls um allan þann frábæra hugbúnað sem að
þjóðfræðingar eru að nýta sér dag frá degi við rannsóknir og störf.
Ert þú tækni-tröll eða veistu aðeins meira en ekkert um vissan
hugbúnað/forrit og hefur nýtt hann í námi eða við störf? Værir þú til í að
koma og deila þekkingu þinni með okkur hinum með smá fræðslu og óformlegu
spjalli?
Við biðjum þau sem hafa áhuga á að vera með smá kynningu á
hugbúnaði/forritum fyrir aðra þjóðfræðinga að hafa samband við FÞÍ á
facebook eða formann þess, Önnu Karen.
Viðburðurinn mun fara fram fimmtudaginn 19. janúar kl. 17:30 í stofu 203 í
Odda, hann má finna á facebook: https://fb.me/e/22ghhkbXX
Hlökkum til að heyra frá ykkur!
-Stjórn FÞÍ


More information about the Gandur mailing list