[Gandur] Fwd: Landsbyggðarráðstefna 2023: Á mótum heima

Félag þjóðfræðinga á Íslandi felagthjodfraedinga at gmail.com
Wed Apr 5 15:29:22 GMT 2023


Að þessu sinni mun Landsbyggðarráðstefna Félags þjóðfræðinga á Íslandi fara
fram *í Stykkishólmi helgina 29. september til 1. október.* Opnað hefur
verið fyrir skráningar hér: https://bit.ly/landsbyggdarradstefna-amotumheima
<https://bit.ly/landsbyggdarradstefna-amotumheima?fbclid=IwAR0AYumOcVoCByE6wsqAo2V280ID3OtbKbjzzeXb3gTrd5APnNUhiHo_5HU>
og er ráðstefnugjaldið að þessu sinni 7.000 kr fyrir meðlimi FÞÍ en 10.000
kr. fyrir aðra ráðstefnugesti. Innfalið í gjaldinu er hádegismatur og
kvöldmatur á laugardeginum, ásamt safnaheimsóknum og annarri skemmtun.
Einnig er hægt að skrá sig einungis á málstofurnar á laugardeginu en þá er
gjaldið 2.500 kr. með hádegismat, skráning
https://bit.ly/landsbyggdarradstefna-amotumheima
<https://bit.ly/landsbyggdarradstefna-amotumheima?fbclid=IwAR07keVfpTpYrKHpSEbqAUbB105ThTd_b649Hh5lwvJKLKdCuQkgn3oMvTk>
Þau sem hafa hug á að halda erindi eru beðin um að senda inn stutt ágrip og
titil (200-300 orð) á netfangið felagthjodfraedinga at gmail.com fyrir 1.
júní. Farið verður yfir ágripin og höfundum svarað eigi síðar en 15. júlí.
Það er Félag þjóðfræðinga á Íslandi sem að stendur að ráðstefnunni í
samstarfi við Byggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla og Safnahús Borgarfjarðar.
Við viljum benda á að það borgar sig að bóka gistingu snemma til að tryggja
sér öruggt pláss fyrir þessa helgi!
Yfirskrift ráðstefnunar er að þessu sinni Á mótum heima. Yfirskriftin vísar
til hlutverks þjóðfræðingsins sem oftar en ekki er að fást við efni sem
hvílir á mótum heima; heima fortíðar, nútíðar eða framtíðar; þess
efniskennda og þess óhlutbundna; þess sýnilega eða hulda í menningu okkar;
þess sem stendur fyrir utan og fyrir innan; heima þar sem ólíklegustu
þættir mannlegrar tilveru mæta þjóðfræðinni og það er hlutverk
þjóðfræðingsins að ná utan um efnið og miðla því til annarra.
Þjóðfræðin er þverfagleg og vísar yfirskriftin einnig til þeirrar nálgunar,
að nálgast viðfangsefnið með fjölbreyttum aðferðum sem sóttar eru í ólíka
heima fræðanna.
Til að greiða fyrir herlegheitin skal millifæra á Félag þjóðfræðinga á
Íslandi fyrir 1. ágúst og senda kvittun á felagthjodfraedinga at gmail.com.
Kt. 690299-3149
Rkn. 0137-26-14667
*Drög að dagskrá ráðstefnunar (birt með fyrirvara um breytingar):*
*Við vekjum sérstaka athygli á því að opið verður á Safnahúsi Borgarfjarðar
á föstudeginum og sunnudeginum og frír aðgangur fyrir ráðstefnugesti.
Auglýst nánar síðar.*
*Föstudagurinn 29. september*
18:00 Móttaka og setning Landsbyggðarráðstefnu FÞÍ
*Laugardagur 30. september*
Kl 9:00 Málstofa
Kl 11:30 Hádegismatur
12: 15 Málstofa
14:30 Farið verður í skoðunarferð um Stykkishólm þar sem komið verður við á
áhugaverðum stöðum.
18: 30 Kvöldmatur
20: 00 Samvera
*Sunnudagur 1. október*
Kl 11: 00 Aðalfundur Félags þjóðfræðinga á Íslandi
Dagskrá aðalfunds verður auglýst sérstaklega.
12:00 Ráðstefnunni er formlega lokið og hádegismatur (sérskráning)
13:00 Í boði verður gönguferð upp á Helgafell
Ef einhverjar spurningar kvikna má endilega senda okkur póst á
felagthjodfraedinga at gmail.com
Hlökkum til að sjá ykkur!
*Facebook *viðburður Landsbyggðarráðstefnu 2023: https://fb.me/e/16JICqQKZ
<https://l.facebook.com/l.php?u=https%3A%2F%2Ffb.me%2Fe%2F16JICqQKZ&h=AT1ip8j84S3e7M8qsHOyTMtgQeadJRQun_y5r4EQEkwB3tgbrLjWAmYdz7Ap9NZ6PPLyB_xQeeSPJlL8Cr9Hgv6pZ3_4au9Id7VKKoMZpBgZx3rPWGWfJZVxcAClZqjdPeqkwUgPOLGvXjjE_A&__tn__=-UK-R&c[0]=AT1RJuMaheOwQT5camc7USI9aO5NkT0UAZzf8Tq7M1xwD2kOKGkIinaxaGOaGNa0hyhlpCbpybjtjRetch_UQielYezSgxnJ0hXoGSJZ01Ys8CzQ6jEsxfrjoLKfwPampUJtTUqgUBZjYJEjln_cu_cPOnIboc59olO4E4wHQE-inyhRbSYlmqeS8B1P_gJKEF8KlbKjvTW6>


More information about the Gandur mailing list