[Gandur] Fyrirlestur og þjóðlagasamspil fimmtudaginn 8.des

Félag þjóðfræðinga á Íslandi felagthjodfraedinga at gmail.com
Tue Dec 6 08:53:54 GMT 2022


Fyrirlestur: Ull er ekkert bull: Dans, söngur og taktur í hversdegi
Norður-Atlantshafseyja
Fyrirlesari: Dr. Tiber F.M. Falzett, lektor í þjóðfræði við Dyflinarháskóla
(University College Dublin)
Staður: Oddi 201
Tími: Fimmtudagur 8. desember 2022 kl. 20
Þjóðfræðingurinn og sekkjapípuleikarinn Tiber Falzett sækir okkur heim með
fyrirlestri og tónlistarviðburði næstkomandi fimmtudagskvöld. Hann skoðar
flutning og fagurfræði skosk-gelískra vinnusöngva og önnur form hefðbundins
samsöngs í Suðureyjum og Nýja-Skotlandi (Nova Scotia). Sérstaklega verður
litið til þess hvernig skoskir þjóðfræðingar, og norrænir kollegar þeirra,
settu fram vettvangsathuganir sínar á ríkulegri sönghefð svokallaðra
ullarþæfingarsöngva eða „waulking songs”. Við skoðum dýnamískt flæði
þessarar sönghefðar í tímans ráðs, í tónum og tali, hljóð og mynd og með
því að syngja saman við þæfingarborðið (waulking table/a’ chliath-luaidh).
Með því að skynja og skilja hreyfingar okkar könnum við þræðina sem liggja
á milli hversdagslegrar tjáningar, söngs, dans, hljóðfæraleiks og
vinnumenningar sem samfélög eyjarskeggja við Norður-Atlantshaf höfðu í
hávegum. Boðið er upp á samtal, frekari rannsóknir og skapandi samstarf
þjóðfræðinga, tónlistarfólks og dansara sem vilja ljá því hversdagslega og
óvenjulega eyra og hvernig við höfum haldið takti hvort við annað.

Að fyrirlestrinum loknum verður haldið á Sónó, Norræna húsinu, þar sem
boðið verður upp á ýmis konar samspil, samveru og jólaöl.
Viðburðinn er haldin í samstarfi námsbrautar í þjóðfræði og safnafræði við
Háskóla Íslands og Félags þjóðfræðinga á Íslandi.

Öll velkomin!
Fyrirlesturinn er á ensku


More information about the Gandur mailing list