[Gandur] Aðalfundur FÞÍ 17. september

Félag þjóðfræðinga á Íslandi felagthjodfraedinga at gmail.com
Fri Sep 11 10:02:41 GMT 2020


Við í stjórn Félags þjóðfræðinga á Íslandi minnum á aðalfund félagsins sem
verður haldinn fimmtudaginn 17. september kl. 18:00. Stefnt er á að
fundurinn verði bæði staðfundur og hægt verði að taka þátt í gegnum
fjarfundarbúnað (zoom).
Á fundinum verður meðal annars farið yfir starf félagsins síðasta árið og
sagt frá því sem er framundan. Kosið verður í ritstjórn Kredda fulltrúa MA
nema og útskrifaðra. Samkvæmt lögum félagsins er einnig komið að því að
kjósa í stöður formanns, meðstjórnanda og tveggja varamanna. Framboð í öll
þessi embætti er hægt að senda inn á netfang félagsins
felagthjodfraedinga at gmail.com
Eftir það verður orðið gefið laust fyrir allskonar umræður um þjóðfræði,
félagið, viðburði og önnur skemmtilegheit.  Boðið verður upp á léttar
veitingar og drykki á fundinum.
Nánari upplýsingar um staðsetningu koma fljótlega.
Við hvetjum ykkur til að fylgjast með Facebook viðburði fundarins en slóðin
fyrir þau sem vilja taka þátt í gegnum zoom mun birtast þar:
https://www.facebook.com/events/618726382126284

Kær kveðja,
Stjórn Félags þjóðfræðinga á Íslandi


More information about the Gandur mailing list