[Gandur] Viðbótar erindi fyrir Landsbyggðarráðstefnu 2020

Félag þjóðfræðinga á Íslandi felagthjodfraedinga at gmail.com
Mon Jun 8 12:37:34 GMT 2020


Hægt er að bæta við erindum fyrir Landsbyggðarráðstefnuna 2020 - Frestur
til 22. júní.


Kallað er eftir erindum fyrir Landsbyggðarráðstefnuna 2020 sem haldin
verður á *Egilsstöðum 18.-20. september*. Yfirskrift og þema ráðstefnunnar
eru Vegamót (nánari lýsing fyrir neðan). Áhugasamir eru beðnir að senda *titil
og stutt ágrip* (200-300 orð) á netfangið felagthjodfraedinga at gmail.com
fyrir *22. júní *næstkomandi. Öllum er frjálst að senda inn erindi og
endilega hafið samband ef eru einhverjar spurningar. Félag þjóðfræðinga á
Íslandi og Minjasafn Austurlands standa að ráðstefnunni í samvinnu við
fleiri aðila. Hlökkum til að sjá ykkur!


Þema ráðstefnunnar.
Yfirskriftin Vegamót vísar til þess að á landsbyggðarráðstefnunni mætist
fólk úr ólíkum áttum; fólk frá ólíkum landshornum, fólk úr ýmsum
fræðigreinum, nemar á ýmsum stigum í námi, áhuga- og fræðafólk. Þar mætast
líka ólík viðfangsefni, hugmyndir, aðferðir og nálganir, fortíð og nútíð og
hinir ýmsu krókar og kimar mannlífsins. Vegamót standa líka fyrir
hreyfanleika, ferðalög og breytingar. Þegar komið er að vegamótum er venjan
að staldra við, horfa í kringum sig, kanna ólíka möguleika og jafnvel líta
yfir farinn veg. Svo þarf að ákveða hvort breyta eigi um stefnu eða halda
áfram á sömu leið.

Yfirskriftin hefur svo einnig skemmtilega tilvísun til staðsetningar
ráðstefnunnar á Egilsstöðum en þeir hafa í gegnum tíðina verið nefndir
vegamót Austurlands.

Kær kveðja,
Stjórn Félags þjóðfræðinga


More information about the Gandur mailing list