[Gandur] Kreddur snúa aftur!

Félag þjóðfræðinga á Íslandi felagthjodfraedinga at gmail.com
Wed Apr 1 16:18:19 GMT 2020


Góðan dag,

Það gleður okkur í stjórn Félags þjóðfræðinga á Íslandi að tilkynna að
félagið hefur nú tekið við veftímaritinu Kreddum og eldra efni er nú
aðgengilegt á vef félagsins: http://www.thjodfraedi.is/kreddur.html

Það er því kjörið að stytta sér stundir nú í samkomubanninu með að glugga í
gamlar greinar. Við erum þó enn að klára allskonar frágang og fíniseringar.

Þá nýtum við tækifærið og óskum eftir nýju efni en hægt er að senda inn
efni í tveim flokkum: *Bárur *(pistlar og hugleiðingar) og *Brimöldur*
(greinar). Hver sem er getur sent inn efni í Kreddur svo fremi sem efnið
tengist þjóðfræði á einn eða annan hátt.

Ef einhver eru áhugasöm um að sitja í ritstjórn Kredda má gefa færi á sér
með að senda póst á netfangið felagthjodfraedinga at gmail.com

Við þökkum þeim sem stóðu að tímaritinu á sínum tíma kærlega fyrir
framtakssemi og vel unnin störf.

Bestu kveðjur,
Stjórn Félags þjóðfræðinga á Íslandi


More information about the Gandur mailing list