[Gandur] Fwd: Miðasala á Þorrablótið

asdis at gjola.is asdis at gjola.is
Mon Feb 4 18:43:52 GMT 2019


Sæl verið þið.

   Verður þorramatur á þorrablótinu eða bara matseðillinn að neðan?

Ásdís


----- Áframsent skeyti -----
Frá: "Félag þjóðfræðinga á Íslandi" <felagthjodfraedinga at gmail.com>
Til: gandur at listar.hi.is
Sent: Mánudagur, 4. Febrúar, 2019 12:26:41
Efni: [Gandur]Miðasala á Þorrablótið

Komið þið sæl!

Nú fer þorrablótið okkar alveg að bresta á en það verður haldið á Tunglinu,
Lækjargötu 2A þann 15. febrúar 2019.

Miðaverð er 6500 krónur fyrir félagsmenn Félags þjóðfræðina á Íslandi og
Þjóðbrókar og 7500 fyrir aðra.

Miðasalan er á eftirfarandi tímum í Odda í Háskóla Íslands:
Þriðjudagur 5. febrúar kl.10:00-15:00
Miðvikudagur 6. febrúar kl. 10:00-15:00
Fimmtudagur 7. febrúar kl. 10:00-15:00
Föstudagur 8. febrúar kl. 10:00-15:00

Þau sem ekki komast í miðasöluna er bent á að hafa samband við okkur á
felagthjodfraedinga at gmail.com.


Matseðillinn er kominn og hann er stórglæsilegur að vanda

Forréttur:
Blandaður þorramat

Aðalréttur:
Ofnbakaðar kjúklingabringur og rósmarín grillað lambalæri

Meðlæti:
Smjörsteikt rótargrænmeti, sætar kartöflur, kartöflugratín ferskt salat,
græn piparsósa og sherrysveppasósa

Eftirréttur:
Súkkulaðikaka

Vegan:

Forréttur:
Butternut squash súpa með kókosrjóma

Aðalréttur:
Rauðrófusteik með portobello svepp, spergilkáli, ofnbökuðu rótargrænmeti
kryddhrísgrjónum og paprikusósu

Eftirréttur:
Ferskt ávaxtasalat með hindberjasósu og mango ís

Ef þið lumið á skemmtiatriðum endilega hafið samband við okkur!

Við hlökkum til að sjá ykkur
Stjórn FÞÍ
_______________________________________________
Gandur mailing list
Gandur at listar.hi.is
http://listar.hi.is/mailman/listinfo/gandur
-- 
Ásdís Thoroddsen,
Gjóla ehf,
Bergstaðastræti 28A,
101 Reykjavík.
+354 5524456 / +354 8689771
www.gjola.is


More information about the Gandur mailing list